Sveinn Jóhannsson mun hvíla þegar íslenska karlandsliðið í handknattleik mætir Danmörku í Malmö í dag í fyrsta leik sínum á Evrópumeistaramótinu í Austurríki, Noregi og Svíþjóð. Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem HSÍ sendi frá sér í gærkvöld.
Sveinn Jóhannsson mun hvíla þegar íslenska karlandsliðið í handknattleik mætir Danmörku í Malmö í dag í fyrsta leik sínum á Evrópumeistaramótinu í Austurríki, Noregi og Svíþjóð. Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem HSÍ sendi frá sér í gærkvöld. Þá kom einnig fram að allir leikmenn íslenska liðsins væru heilir heilsu og klárir í slaginn. Bæði Elvar Örn Jónsson og Bjarki Már Elísson hafa verið að glíma við meiðsli en nú er ljóst að þeir verða báðir til taks í fyrsta leik.