Ólöf Einarsdóttir fæddist í Reykjavík 21. september 1944. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 13. desember 2019. Foreldrar hennar voru hjónin Guðlaug Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 11. ágúst 1921, d. 2. mars 2010, og Einar J. Gíslason vörubílstjóri, f. 11. september 1918, d. 19. febrúar 2006. Ólöf var elst fimm systkina, hin eru: Sigurlaug, f. 21. ágúst 1946, Erna, f. 17. ágúst 1949, Einar Örn, f. 28. september 1951, og Hrefna, f. 29. nóvember 1958, d. 25. febrúar 1995.

Ólöf giftist hinn 12. október árið 1968 eftirlifandi eiginmanni sínum, Boga Þórðarsyni byggingatæknifræðingi, f. 8. mars 1944. Foreldrar hans voru hjónin Ólöf Guðbrandsdóttir frá Hrafnkelsstöðum í Hraunhreppi á Mýrum og Þórður Bogason úr Flatey á Breiðafirði. Synir þeirra eru: 1) Þórður Birgir, f. 15. júlí 1969, véla- og iðnaðarverkfræðingur. Eiginkona hans er Tinna Björk Baldvinsdóttir sálfræðingur, f. 20. september 1973. Börn þeirra eru Aron Baldvin, f. 1995, Dara Sóllilja, f. 2003, Stígur Diljan, f. 2006, og Snæfríður Eva, f. 2015. 2) Einar Þór, f. 2. september 1978, heila- og taugaskurðlæknir í Bandaríkjunum, eiginkona hans er Jana Friðfinnsdóttir lögfræðingur, f. 24. júlí 1978. Börn þeirra eru Tandri, f. 2002, og Ýrr, f. 2007.

Ólöf eða Ollý, eins og hún var ætíð kölluð, fæddist á Hringbraut 48 í Reykjavík. Hún ólst upp á Ásvegi 16 og þar stofnaði hún sitt fyrsta heimili ásamt Boga og bjó þar þangað til þau fluttust í Engjasel 52 árið 1977.

Ólöf lauk sveinsprófi í hárgreiðslu 18 ára. Eftir að hún öðlaðist meistararéttindi stofnaði hún hárgreiðslustofuna Tinnu árið 1965, fyrst á Grensásvegi 50 en síðar í Furugerði 3. Rak hún stofuna í 46 ár eða til ársins 2011. Eftir að hún lét af störfum naut hún samvista við fjölskyldu sína.

Útför Ólafar fór fram í kyrrþey hinn 20. desember 2019 að ósk hinnar látnu.

Kallið er komið,

komin er nú stundin,

vinaskilnaðar viðkvæm stund.

Vinirnir kveðja

vininn sinn látna,

er sefur hér hinn síðsta blund.

Margs er að minnast,

margt er hér að þakka.

Guði sé lof fyrir liðna tíð.

Margs er að minnast,

margs er að sakna.

Guð þerri tregatárin stríð.

(V. Briem)

Elsku Ollý systir mín, ég vissi að þú værir mikið veik en maður er aldrei tilbúinn fyrir kveðjustundina. Þetta gerðist mjög snöggt. Þú varst hjá mér kvöldið áður og við borðuðum saman. Þú varst svo hress og þér virtist líða ágætlega og ég átti alls ekki von á að þetta yrði síðasta kvöldstundin okkar saman.

Við vorum mjög samrýndar systur. Við unnum saman í 46 ár á hárgreiðslustofunni Tinnu. Það var góður tími og þar leið mér vel. Eftir að Gylfi maðurinn minn dó vorum við enn meira saman. Þá voruð þið Bogi svo elskuleg að bjóða mér oft með ykkur á hina ýmsu viðburði eins og á tónleika og í leikhús. Við ferðuðumst einnig oft saman til útlanda og við vorum nýkomin heim úr einni af ferðum okkar saman til Bandaríkjanna þar sem við heimsóttum Einar Þór, Jönu, Tandra og Ýri.

Við systur hringdum í hvor aðra nokkrum sinnum á dag og vorum búnar að festa símatíma milli 10 og 11 á hverjum morgni. Einnig var það fastur liður hjá okkur að borða saman á þriðjudagskvöldum, þá komuð þið Bogi til mín á Skúlagötuna. Þessar minningar ylja mér á þessum erfiðu tímum og ég mun varðveita þær í hjarta mínu. Þú varst dásamleg systir og ég sakna þín mikið. Elsku Bogi, Þórður Birgir, Einar Þór og fjölskyldur, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning þín, elsku systir mín.

Sigurlaug Einarsdóttir (Silla).

Mágkona mín Ólöf eða Ollý eins og hún var ávallt kölluð hefur kvatt þetta jarðlíf. Mér er hugsað til baka til þeirra ára þegar ég kom inn í fjölskyldu Einars mannsins míns bróður Ollýjar sem þá bjó á Ásvegi 16. Þá bjuggu foreldrarnir á miðhæðinni og börnin ýmist í risinu eða kjallaranum. Ollý og Bogi ásamt ungum syni sínum Þórði Birgi bjuggu þá í kjallaranum. Mikill gestagangur var á heimilinu og margt skemmtilegt gert sem þessi samheldna fjölskylda tók sér fyrir hendur og oft mikið fjör. Seinna flutti svo litla fjölskyldan úr kjallaranum í Engjaselið og Einar Þór yngri sonurinn bættist við. Þar hafa þau Ollý og Bogi búið alla tíð síðan. Ollý stofnaði ung hárgreiðslustofuna Tinnu. Þangað komu flestir úr fjölskyldunni í klippingu og greiðslu. Á stofunni vann Silla systir hennar alla tíð og voru þær mjög samrýmdar. Margar ferðir í sumarbústaðinn til okkar Einars í Kiðjabergið eru minnisstæðar. Þá var alltaf gaman og stutt í sprellið. Ollý hafði yndi af góðri tónlist og stundum tóku þau Bogi smá danssnúning.

Utanlandsferðir með stórfjölskyldunni eru minnisstæðar, bæði til Spánar, Flórída og ferðir til Ernu og Begga í Kanada. Fyrir allar þessar samverustundir erum við þakklát. Ollý fylgdist vel með öllum tískustraumum bæði í sínu fagi og svo hafði hún smekk fyrir fallegum hlutum eins og heimili þeirra Boga ber merki um. Alltaf var hægt að skoða nýleg hönnunarblöð bæði á hárgreiðslustofunni og heima í Engjaseli. Ómissandi hafa verið öll glæsilegu hádegisboðin á gamlársdag. Þar hafa Ollý og Bogi staðið fyrir því að halda allri fjölskyldunni saman og ógleymanleg eru öll heimagerðu skemmtiatriðin.

Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir í veikindum. Kvöldið áður en hún kvaddi þetta líf kom ég við á Skúlagötunni hjá Sillu systur hennar, þar voru þau Ollý og Bogi. Ollý talaði um að hún væri glöð og þakklát fyrir að hafa átt gott líf og var ánægð að hafa komist nýlega til Einars Þórs og fjölskyldu í Bandaríkjunum. Hún bað svo um að ég hjálpaði Sillu að hengja upp jólaóróana. Við kvöddumst eftir að hafa farið saman niður í lyftunni. Hún virtist sátt og þannig vil ég muna elsku Ollý.

Ég votta Boga og fjölskyldunni allri samúð mína. Blessuð sé minning Ollýjar.

Hulda S. Haraldsdóttir.

Elsku amma, þegar ég sá nafnið þitt á kransinum á kistunni í jarðarförinni þinni hugsaði ég um hversu mikill karakter fylgdi nafninu þínu. Ég sá fyrir mér skemmtilega, sérstaka, sniðuga, ofur hressa og málglaða konu með risastórt hjarta og það ert þú, amma mín. Eftirfarandi lýsing er orðsporið sem þú skilur eftir þig í mínum huga.

Ég var og er mikill ömmu- og afastrákur og var því mjög náinn ömmu Ollý eins og hún var kölluð. Lunderni hennar var það sem gerði hana svona frábæra. Það var ekki fyrir svo löngu sem ég hafði orð á því við pabba hversu hress hún væri, mér fannst þetta eiginlega pínu einkennilegt. Vegna þess að það var meira að segja erfitt að hitta á hana í venjulegu skapi ef svo má segja, amma var bara alltaf ofur hress!

Minningarnar sem ég á um ömmu eru margar og munu lifa með mér um ókomna tíð. Mig langar að nefna nokkur atriði sem snerta mig og ég mun sakna einna mest. Ekki er þörf á að vefengja það neitt að ömmu leiddist nú ekki að tala og það sem gerði það svo skemmtilegt var hvað hún gerði sér mikla grein fyrir því sjálf. Mér fannst alltaf jafn fyndið þegar hún var búin að tala í svolitla stund og varð meðvituð um það þá sagði hún oft á tíðum við sjálfa sig: „Æ, þegiðu nú Ólöf, þú hefur talað alltof mikið,“ síðan hló hún og hélt fyrir munninn á sér – sem dugði þó yfirleitt einungis í skamman tíma.

Fyrir nokkrum árum var ég að undirbúa mig fyrir bílprófið mitt og fór afi með mér í nokkur skipti á bílaplan að æfa mig að keyra og leggja í stæði. Eitt skiptið, mér til mikillar undrunar, kom amma með, en hún var afar bílhrædd og treysti engum fyrir því að keyra nema afa. „Ég er svoleiðis búin að mana mig upp í þetta og er búin að æfa mig að spenna mig í öll beltin“ var það fyrsta sem amma sagði við mig þegar ég sá hana. Síðan þegar ég settist í bílstjórasætið og ók af stað gólaði hún allan tímann aftur í ásamt hláturskasti inn á milli með lokuð augun því hún þorði ekki að kíkja hvað væri að gerast. Svona var amma, sagði og lét í ljós nákvæmlega það sem hún hugsaði.

Að lokum langar mig að tala um samband ömmu við afa og Sillu systur sína sem voru hennar nánustu lífsförunautar. Það leyndi sér ekki að afi var maður að hennar skapi. Enda erfitt að finna jafn traustan, þolinmóðan og góðan mann eins og afa Boga. Samband ömmu við Sillu systur sína var algjörlega einstakt og voru þær skilgreiningin á því sem kallað er að vera samlokur. Til þess að útskýra í stuttu máli sambandið þeirra á milli ætla ég að vitna í Sillu. En þegar afi hringdi í hana árla morguns á dánardegi ömmu til þess að tilkynna henni að hún hefði fengið heilablóðfall hélt Silla að amma væri að hringja að gamni sínu, einfaldlega til þess að láta hana vita að hún gæti haldið áfram að sofa.

Elsku amma, ég leit mikið upp til þín og mun sakna þín alla mína tíð. Við skulum passa afa Boga og Sillu frænku fyrir þig.

Þitt elsta barnabarn,

Aron Baldvin.

Elsku Ollý frænka, það er erfitt að trúa því að þú sért farin frá okkur. Þú varst svo hress og kát og það var alltaf jafn gaman hjá okkur þegar við hittumst. Skemmtilega smitandi hlátur þinn ómar enn í eyrum okkar. Þú varst mjög uppátækjasöm og hugmyndarík og það var svo sannarlega engin lognmolla í kringum þig. Þú fórst þínar eigin leiðir og hafðir gaman af því að gera eitthvað öðruvísi og óhefðbundið. Í fjölskylduboðum áttir þú það til að fá alla fjölskylduna með þér að gera leikfimiæfingar, halda tískusýningar eða stinga upp á því í bústaðaferðum að fara út í sólbað í svefnpoka um hávetur.

Jólahátíðin stendur nú yfir og eigum við systur margar góðar minningar um þig tengdar þeirri hátíð. Ógleymanleg eru jólatrén þín. Það eru mörg ár síðan þú byrjaðir að setja upp tré úr ýmsum hlutum, skreyttir og kallaðir jólatré. Mikið grín var gert að þessum trjám en í dag eru allir að keppast við að finna lausnir til að setja upp jólatré sem eru umhverfisvæn og varstu því langt á undan okkur öllum. Áramótaveislurnar sem þið og Bogi hafið haldið Í Engjaselinu hafa verið yndisleg og ómissandi leið til að kveðja liðin ár. Þessi boð voru öðruvísi en hefðbundin íslensk jóla- og áramótaboð sem við fjölskyldan héldum öll mikið upp á.

Ótal fleiri minningar koma upp í huga okkar frá því við vorum yngri. Allar heimsóknirnar á hárgreiðslustofuna þína, en þar fengum við ekki bara flottustu klippinguna í bænum heldur gátum við alltaf laumað okkur í eitthvert góðgæti inni á kaffistofu og farið í hárgreiðsluleik með rúllur, pinna og strípuhettur. Það var líka alltaf svo gaman að gista í Engjaselinu á skrautlegu dýnunum í stofunni. Þar dekruðuð þið Bogi við okkur systkinin. Þá eru mjög minnisstæðar skíðaferðirnar okkar í Skálafell og Bláfjöll og hringferðin um landið á Pollanum.

Ollý frænka, þú varst einstök manneskja, með fágaðan smekk og mikil fyrirmynd okkar systra. Þú, Bogi og Silla hafið verið einskonar þrenning síðastliðin ár sem alltaf voruð saman og kunnuð svo sannarlega að njóta lífsins. Missirinn er mikill fyrir Boga, Sillu, og afkomendur þína en við fjölskyldan stöndum saman og glaðlegar minningar, húmor þinn og hlátur mun lifa með okkur áfram.

Þínar frænkur,

Hrafnhildur og Svanhildur.