Kristinn Ólafur Ólafsson fæddist 30. júlí 1959. Hann lést 22. desember 2019.

Útför Kristins fór fram 8. janúar 2020.

Okkur langar að minnast kærs vinar, mágs og svila, Kristins Ólafs Ólafssonar, sem lést 22. desember sl. eftir harða baráttu við illvígan sjúkdóm.

Kiddi eins og hann var kallaður var góður vinur, félagi, kokkur, veiðimaður og golfari. Hann var mikill matmaður og snilldarkokkur og töfraði hann fram dýrindis mat eins og væri hann fagmaður. Kom það glöggt fram í einni veiðiferðinni þegar félagar hans drógu fram ostasamlokurnar sínar en hann margra hæða veislusamloku, þá sagði einn félaginn: „Ég borða nú bara til að lifa,“ þá heyrðist í Kidda: „Ég lifi til að borða.“

Við kveðjum Kidda með söknuði og munum geyma vel allar góðu minningarnar úr sumarbústaðarferðum, utanlandsferðum, útilegum og mörgu öðru skemmtilegu sem við gerðum saman.

Góða ferð, kæri vinur.

Við sendum aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur.

Halla og Björgvin.