Íran Farþegaflugvélin sem hrapaði var frá Úkraínu og voru 176 um borð.
Íran Farþegaflugvélin sem hrapaði var frá Úkraínu og voru 176 um borð. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Teheran. AFP. | Írönsk flugmálayfirvöld höfnuðu því í gær að úkraínskri farþegaþotu, sem fórst skammt frá Teheran á miðvikudag, hefði verið grandað með flugskeyti.

Teheran. AFP. | Írönsk flugmálayfirvöld höfnuðu því í gær að úkraínskri farþegaþotu, sem fórst skammt frá Teheran á miðvikudag, hefði verið grandað með flugskeyti.

„Það er eitt sem er öruggt, þessi flugvél varð ekki fyrir flugskeyti,“ sagði Ali Abedzadeh flugmálastjóri á blaðamannafundi í Teheran.

Fram hefur komið að leyniþjónustur Breta og Kanadamanna telja að fyrir mistök hafi írönsk eldflaug grandað farþegaþotunni. Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, og Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segja allt benda til þess að þotan sem hrapaði hafi verið skotin niður með írönsku flugskeyti. Þeir segja brýnt að ítarleg rannsókn fari fram á málinu.

Abedzadeh sagði að ásakanir í garð Írana ættu ekki við rök að styðjast og ekki væri hægt að fullyrða neitt með vissu fyrr en rannsókn á flugritunum væri lokið.

Yfirlýsingar Breta og Kanadamanna komu fram í kjölfar birtingar myndskeiðs sem á að sýna að farþegaþotan hafi verið skotin niður. Myndskeiðið, sem New York Times segist hafa sannreynt, sýnir hraðskreiðan hlut skjótast upp í himininn áður en blossi myndast og skömmu síðar heyrist sprenging.

„Við höfum séð nokkur myndskeið. Við staðfestum að flugvélin var logandi í 60 til 70 sekúndur,“ segir Abedzadeh. „En að hún hafi verið hæfð af einhverju gengur ekki upp vísindalega séð,“ bætti hann við. Ali Abedzadeh sagði til skýringar að á sama tíma og úkraínska þotan var í átta þúsund feta hæð hefðu nokkrar aðrar flugvélar, bæði innlendar og erlendar, flogið í svipaðri hæð á sömu slóðum og því gengi einfaldlega ekki upp að hún hefði verið hæfð með flugskeyti.

Upplýsingar um flug sýna að einhver flugumferð var um Mehrabad-flugvöllinn, sem er 35 km norðaustur af Imam Khomeini-alþjóðaflugvellinum þaðan sem Boeing-þota úkraínska flugfélagsins var að koma.

Íranski flugmálastjórinn, sagði að fulltrúum Bandaríkjanna, Kanada, Frakka, Úkraínumanna og Svía hefði verið boðið að fylgjast með rannsókn málsins til að sýna fram á að Íranar hefðu engu að leyna. Áður hafði íranska utanríkisráðuneytið tilkynnt að fulltrúum Boeing-flugvélaframleiðendanna, hefði verið boðið að taka þátt í rannsókninni. Hreyflar flugvélarinnar voru að hluta til framleiddir í Frakklandi og hafa Frakkar boðið fram þarlenda sérfræðinga til að rannsaka upplýsingar sem flugriti vélarinnar skráði.

Vadym Prystaiko, utanríkisráðherra Úkraínu, sagði í gær að bandarískir embættismenn hefðu látið úkraínskum stjórnvöldum í té „mikilvægar upplýsingar“ um slysið.

Þá sagði utanríkisráðuneyti Írans að kanadísk sendinefnd væri á leið til Írans „til að sjá um málefni kanadískra fórnarlamba.“ Íran og Kanada slitu stjórnmálasambandi árið 2012.