Innkallað Umbúðir súkkulaðisins sem Nói Siríus hefur kallað inn.
Innkallað Umbúðir súkkulaðisins sem Nói Siríus hefur kallað inn.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Vegna bilunar í vélbúnaði hefur Nói Síríus ákveðið að innkalla þrjú vörunúmer því ekki er hægt að útiloka að plast hafi borist í súkkulaðiplötur.

Vegna bilunar í vélbúnaði hefur Nói Síríus ákveðið að innkalla þrjú vörunúmer því ekki er hægt að útiloka að plast hafi borist í súkkulaðiplötur. Um er að ræða tvær stærðir af hreinu Síríus rjómasúkkulaði, annars vegar með 3x100 g plötum, sem merkt er best fyrir dagsetningarnar 3.6. 2021 og 4.6. 2021, og hins vegar 150 g af hreinu Síríus rjómasúkkulaði, með dagsetningunni 17.6. 2021. Þá er 300 g stærð af Síríus suðusúkkulaði einnig innkölluð, og eru umbúðir merktar best fyrir 9.6. 2021, 10.6. 2021, 11.6. 2021 og 12.6. 2021. Eru neytendur sem keypt hafa þessar vörur beðnir um að skila þeim inn í verslun eða á skrifstofu Nóa Síríusar að Hesthálsi 2-4.

Í tilkynningu frá Nóa Síríusi kemur fram að plastið sem kann að hafa farið í súkkulaðið sé ýmist blátt eða bleikt að lit og ætti því að vera sjáanlegt neytendum þegar varan er opnuð. Þá er tekið fram að umræddur vélbúnaður hafi verið lagfærður og því sé um einangrað tilvik að ræða. „Nói Síríus fylgir ströngum gæðastöðlum og gerðar hafa verið ráðstafanir til að útiloka að sambærilegt tilvik komi upp aftur,“ segir í tilkynningunni. Þá harmar Nói Síríus þau óþægindi sem þetta kunni að hafa valdið neytendum.