Mikael Lind heldur tónleika í Mengi í kvöld kl. 21.
Mikael Lind heldur tónleika í Mengi í kvöld kl. 21. Lind hefur gefið út fjölda platna með tilraunakenndri sveimtónlist og í fyrra samdi hann tónlist með fiðluleikaranum og tónskáldinu Hoshiko Yamane úr hljómsveitinni Tangerine Dream og kom hún út á plötunni Spaces in Between. Þeirri útgáfu verður fagnað í kvöld og mun Mikael koma einn fram en fiðluleikur Yamane verða settur í „granular“ hljóðgervla og klipptur í sundur. Einnig verður sýnd vídeólist eftir Rakel Jónsdóttur með dansi eftir Bergþóru Einarsdóttur.