Vinkonurnar Tinna, Lára og Signý í Andagift Súkkulaðisetri í Reykjavík ætla að fagna tveggja ára tilveru setursins í dag laugardag. Þær boða til risa súkkulaði möntrupartís í Andagift frá klukkan 20.30 til 23.
Vinkonurnar Tinna, Lára og Signý í Andagift Súkkulaðisetri í Reykjavík ætla að fagna tveggja ára tilveru setursins í dag laugardag. Þær boða til risa súkkulaði möntrupartís í Andagift frá klukkan 20.30 til 23.30 til að fagna öllum dýrmætu stundunum á liðnu ári. Fögnuðurinn hefst á því að skálað verður í ilmandi súkkulaðibolla, sungnar möntrur við lifandi trommuslátt og hitað upp fyrir danspartí þar sem DJ YAMAHO mun sjá um að halda partíinu gangandi. Súkkulaðibar verður á staðnum með góðgæti til að gæða sér á. Þær segjast hlakka til að fagna, syngja og hrista bossa með þeim sem mæta. Að taka þátt kostar 5.500 krónur og hægt er að tryggja sér miða á andagift.is eða senda línu á andagift@andagift.is