„Hópurinn hefur heillast af vatnslitum og töfrum þeirra þegar litur og vatn flæða saman. Vatnslitir eru krefjandi miðill sem erfitt er að stjórna en glíman við þá leiðir mann að endalausum möguleikum. Efni sýningarinnar er, eins og heiti hennar gefur til kynna, flæði vatns, lita og myndefnis,“ segir í tilkynningu. Sýnendur eru Fríða Björg Eðvarðsdóttir, Guðrún Steinþórsdóttir, Rósa Traustadóttir, Sesselja Jónsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Svanheiður Ingimundardóttir, Þorbjörg Kristinsdóttir og Þóra Mínerva Hreiðarsdóttir.
Eftir opnunardaginn er sýningin opin alla virka daga frá kl. 13 til 18 og um helgar samkvæmt samkomulagi sem þá verður auglýst sérstaklega. Hún stendur til 18. febrúar.