Lukkuleg lending. N-NS
Norður | |
♠8 | |
♥3 | |
♦D973 | |
♣ÁKDG832 |
Vestur | Austur |
♠G109752 | ♠KD4 |
♥52 | ♥DG108 |
♦652 | ♦K108 |
♣54 | ♣1076 |
Suður | |
♠Á63 | |
♥ÁK9764 | |
♦ÁG4 | |
♣9 |
Suður spilar 7G.
David Bakhshi og Artur Malinowski eru nýtt par í enska spilaheiminum og byrjunin lofar, satt að segja, ekki góðu. Þeir tóku þátt í keppninni um landsliðsréttinn á EM í sumar og enduðu í 8. sæti af 10 pörum. Efstir í þeim slag urðu Andy Robson og David Gold.
Malinowski er fæddur Pólverji og hann hefur tælt Bakhshi til að spila við sig kerfi upprunalandsins – pólska laufið. Kerfið er arftaki Vínarkerfisins, byggist á víðáttuopnun á 1♣ og eðlilegri opnun á 2♣. Bakhshi var hér í norður og opnaði á 2♣, „polish style“. Malinowski hleraði með 2♦ og Bakhshi stökk í 3♥. Greinilega var sögnin einhvers konar flís í auga Bakhshi en Malinowski bjóst við bjálka og keyrði í 7♥, sem Bakhshi breytti í 7G. Spaðagosinn út.
Svíning fyrir tígulkóng skilar tólf slögum og sá þrettándi kemur sjálfkrafa með þvingun á austur í rauðu litunum. Lukkuleg lending í þetta sinn.