Reynsla Björgvin Páll Gústavsson er einn af reynslumestu leikmönnum íslenska liðsins en hann er að taka þátt í sínu þrettánda stórmóti með Íslandi.
Reynsla Björgvin Páll Gústavsson er einn af reynslumestu leikmönnum íslenska liðsins en hann er að taka þátt í sínu þrettánda stórmóti með Íslandi. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
EM 2020 Kristján Jónsson kris@mbl.is Björgvin Páll Gústavsson undirbýr sig nú fyrir sitt þrettánda stórmót með íslenska landsliðinu í handknattleik. Markvörðurinn litríki kom inn í landsliðið, nokkuð óvænt, fyrir Ólympíuleikana í Peking árið 2008.

EM 2020

Kristján Jónsson

kris@mbl.is Björgvin Páll Gústavsson undirbýr sig nú fyrir sitt þrettánda stórmót með íslenska landsliðinu í handknattleik. Markvörðurinn litríki kom inn í landsliðið, nokkuð óvænt, fyrir Ólympíuleikana í Peking árið 2008. Hefur síðan þá haldið stöðu sinni að mestu. Í það minnsta hefur hann ekki misst af stórmóti síðan þá ef Ísland hefur á annað borð verið þar með keppnisrétt.

„Ég er ekki sjálfur með þessar tölur á hreinu og velti því lítið fyrir mér. Í hvert skipti er nýtt ævintýri. Á síðasta stórmóti var ég elsti leikmaður íslenska liðsins en nú bara fjórði elsti maður liðsins. Það er skrítinn staðreynd og viss nostalgía í því að Alexander [Petersson] sé kominn aftur í hópinn. Ég vil því meina að ég yngist með hverju mótinu. Eftir fimm til sex ár verð ég aftur orðinn yngstur og farinn að sjá um boltapokann,“ sagði Björgvin léttur þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær en yngstu menn í landsliðinu sinna ýmsum verkum eins og að tína saman boltana. Spurður hvort hann hafi alltaf jafn mikla ánægju af landsliðsverkefnum segir Björgvin svo vera.

„Ég hef það. Síðustu mánuðina minnkaði ánægjan í handboltanum yfir höfuð en það tengist meira mínum andlegu málum. En maður brennur alltaf fyrir landsliðið og það skemmtilegasta sem maður gerir er að spila fyrir landsliðið. Þegar ég byrjaði í handbolta 8 ára gamall var það út af landsliðinu og stórmótunum. Ekkert er skemmtilegra en að klæða sig í búninginn og spila fyrir land og þjóð. Þegar vel gengur er geggjað að geta glatt fólk heima í vonda veðrinu.“

Óhætt er að segja að EM byrji með látum hjá Íslendingum að þessu sinni því í dag mætast Ísland og Danmörk í Malmö. Þegar þessar þjóðir mætast er ávallt eftirvænting í loftinu og nú bregður svo við að Danir eru núverandi heims- og ólympíumeistarar.

Fara þarf vel af stað

„Það þarf ansi margt að ganga upp hjá okkur til að vinna og við þurfum að eiga toppleik á öllum sviðum. Þeir eru að leita að hinni heilögu þrenningu ef svo má segja með því að vinna EM. Við erum því að fara í svakaleik og virkilega erfitt verkefni,“ sagði Björgvin en fyrsti leikur á stórmóti er ávallt svolítið sérstakur hvað varðar spennustig og fleira.

„Já, tilhlökkunin er alltaf mikil og hún byggist smám saman upp. Þegar landsliðið kemur saman þá er mikið hugsað um fyrsta leikinn. Mikilvægt er að fara vel af stað í svona móti. Hvort sem fyrsti leikur vinnst eða ekki þá getur góð spilamennska gefið fyrirheit um það sem koma skal. Í þetta skiptið mætum við besta liði heims í fullri 13 þúsund manna höll. Þótt þúsund Íslendingar styðji okkur verður höllin ansi rauð á morgun enda Danir nánast á heimavelli í Malmö,“ sagði Björgvin og vísar þar vitaskuld í hversu stutt er frá höfuðstaðnum Kaupmannahöfn yfir til Malmö. Björgvin leikur með Skjern í Danmörku og segist ekki hafa orðið var við annað en að Danir beri virðingu fyrir Íslendingum á handboltasviðinu enda hafa þjóðirnar ósjaldan glímt á handboltavellinum í gegnum áratugina.

„Þetta er auðvitað frændþjóð okkar og tengingarnar á milli þessara liða eru margar. Við höfum oft lent á móti þeim í keppnum og ofan á það eru vináttuleikirnir orðnir margir. Stór hópur mun koma frá Skjern til að kíkja á mig og Elvar [Örn Jónsson]. Ég held að það verði ágætis bræðrabandalag í stúkunni á milli Íslendinga og Dana. Vonandi verða læti í Íslendingum á áhorfendapöllunum sem mótvægi við þessa 12 þúsund Dani.

Breiddin mikil hjá Dönum

Spurður um hvort langt sé síðan íslenski hópurinn fór að kortleggja danska liðið segir Björgvin að sú vinna hafi hafist fyrr hjá þjálfarateyminu en leikmönnum. Íslensku leikmennirnir þekki hins vegar þá dönsku mjög vel.

„Þó nokkuð er síðan þjálfararnir byrjuðu að skoða þá. Við þekkjum auðvitað vel til Dana. Þeir eru ekki með mörg ný nöfn á leikmannalistanum og þeir sem eru að koma inn nýir eru leikmenn sem ég kannast við frá dönsku deildinni. Ekki þarf að kynna menn eins og Mikkel Hansen sérstaklega fyrir handboltaáhugafólki. En einn mesti styrkur Dana um þessar mundir er hversu mikla breidd þeir eru með í sínum leikmannahópi. Morten Olsen hefur setið mikið á bekknum í undirbúningsleikjum þeirra en hefur verið einn sá besti í þýsku bundesligunni í vetur. Þeir eiga því mörg vopn sem hægt er að grípa til. Vonandi náum við að finna blöndu sem getur komið Dönum í vandræði á morgun [í dag]. Það væri draumur,“ sagði Björgvin enn fremur við Morgunblaðið.