Sýningarstjórar Pétur H. Ármannsson arkitekt og Ágústa Kristófersdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar. Þau munu veita leiðsagnir og taka þátt í málstofu um Guðjón í Hafnarborg í dag. Sýningunni lýkur eftir helgi.
Sýningarstjórar Pétur H. Ármannsson arkitekt og Ágústa Kristófersdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar. Þau munu veita leiðsagnir og taka þátt í málstofu um Guðjón í Hafnarborg í dag. Sýningunni lýkur eftir helgi. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Arkitektafélag Íslands og Hafnarborg standa fyrir málstofu um Guðjón Samúelsson arkitekt í Hafnarborg, menningarmiðstöð Hafnarfjarðar, í dag frá kl. 11 til 13.

Arkitektafélag Íslands og Hafnarborg standa fyrir málstofu um Guðjón Samúelsson arkitekt í Hafnarborg, menningarmiðstöð Hafnarfjarðar, í dag frá kl. 11 til 13. Fjallað verður um Guðjón, verk hans skoðuð og metin af fimm þátttakendum sem kynnst hafa byggingarlist hans í störfum sínum á ýmsum sviðum, að því er segir í tilkynningu. Í Hafnarborg hefur staðið yfir sýning á verkum Guðjóns sem lýkur á morgun.

Frummælendur á málstofunni verða arkitektarnir Guðni Valberg, Sigurður Einarsson, Sigríður Magnúsdóttir, Sigríður Björk Jónsdóttir, byggingarlistsagnfræðingur og skipulagsfræðingur, og Pétur H. Ármannsson, arkitekt og annar sýningarstjóri sýningarinnar. Fundarstjóri verður Ágústa Kristófersdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar og hinn sýningarstjóri sýningarinnar. Í lok málstofunnar verða umræður milli frummælenda og gesta sem Ágústa mun stýra.

„Guðjón Samúelsson er án efa einn áhrifamesti arkitekt landsins og eru verk hans fyrir löngu orðin kennileiti um landið allt. Guðjón lék einnig lykilhlutverk í skipulagi höfuðborgarinnar og þar af leiðandi nútímavæðingu hennar. Hinn 20. apríl næstkomandi verða liðin 100 ár frá því að Guðjón Samúelsson tók við starfi húsameistara ríkisins. Réttu ári fyrr lauk hann háskólanámi í arkitektúr, fyrstur Íslendinga,“ segir í tilkynningu frá Hafnarborg og að í tilefni síðustu sýningarhelgarinnar verði einnig boðið upp á leiðsagnir um sýninguna með sýningarstjórum. Hún fer fram í dag og á morgun kl. 14.