Jón Freyr Þórarinsson fæddist 5. apríl 1936. Hann lést 21. desember 2019.

Útför Jóns Freys fór fram 7. janúar 2020.

Jón Freyr Þórarinsson var menntamaður og baráttumaður fyrir hagsmunum barna alla tíð. Jón Freyr starfaði í Laugarnesskóla í Reykjavík alla sína starfsævi, sem kennari, aðstoðarskólastjóri en lengst af sem skólastjóri. Jón Freyr var afar farsæll í sínum störfum, metnaðarfullur fyrir hönd skólans og allra nemendanna. Hann nálgaðist starf sitt af auðmýkt, hæversku, virðingu og hlýju. Um leið geislaði af honum krafturinn, eljan og snerpan. Hann var vakandi fyrir síbreytilegum þörfum samfélagsins og ákvað að setja á stofn „lengda viðveru“ við skólann til þess að mæta þörfum og aðstæðum „lyklabarnanna“ í borginni áður en mörkuð var sú stefna að starfrækja frístundaheimili við alla skóla.

Jón Freyr vann ötullega að samfélagsmálum, meðal annars hjá Barnavinafélaginu Sumargjöf, Lúðrasveitinni Svani og Þjóðdansafélagi Reykjavíkur. Allt sitt starf vann hann í þágu annarra, setti samfélagið og samferðmenn í öndvegi. Ég kveð þennan samferðamann minn með söknuði og votta Matthildi, fjölskyldu og vinum hans mína dýpstu samúð.

Helgi Grímsson.

Elsku tengdapabbi hefur kvatt jarðlífið í kjölfar eigin veikinda og andláts Vilborgar, einkadótturinnar, sem fór svo snögglega fyrir liðlega einum mánuði. Kveðjustundir eru erfiðar og þrungnar harmi okkar sem eftir lifum en jafnframt fullar þakklætis.

Það var mín lífsins gæfa að kynnast Þórólfi mínum fyrir 37 árum á námsárunum okkar í Svíþjóð. Á sama tíma voru Vilborg og Össur að skjóta sér saman á Íslandi en svo ótrúlega vildi til að við Össur höfðum verið nágrannar í Kópavoginum. Tengdaforeldrar mínir buðu mig strax velkomna í fjölskylduna og í þeim eignaðist ég svo trausta stólpa að ég vissi fljótlega að þau yrðu alltaf til staðar í blíðu og stríðu meðan heilsan leyfði og leyfir. Matthildur með sinni rökfestu og sterku skoðunum, Jón með blíðmennsku og léttri lund og þau bæði með hjálpsemi og ósérhlífni. Þvílíkt lán að kynnast slíku fólki. Virtust ólík við fyrstu kynni en við nánari kynni kom í ljós hversu samheldin og samstiga þau voru. Sannar fyrirmyndir, bæði í leik og starfi.

Nú þegar ég minnist Jóns með söknuði og þakklæti fyrir að fá að kynnast þeim öðlingi sem hann var bið ég góðar vættir að hlúa sem mest þær mega að okkur öllum í fjölskyldunni og að við berum gæfu til að standa þétt saman eftir sem áður í verkefnum komandi ára.

Að lokum vil ég, fyrir hönd fjölskyldunnar, þakka frábæru starfsfólki hjúkrunarþjónustunnar HERU fyrir aðhlynningu og öllum kærum vinum sem hafa sýnt elsku og hjálpsemi á Hjallaveginum undanfarnar vikur.

Sigrún Valgarðsdóttir.

Við höfum kvatt ástkæran eiginmann okkar kæru frænku Matthildar, Jón Frey Þórarinsson, sem lést hinn 21. desember sl. Allir sem til Jóns Freys þekktu vissu að hann var fyrirmynd í alla staði. Dugnaðarforkur með einstaka lund og ávallt boðinn og búinn að aðstoða aðra. Jón Freyr var hnarreistur og flottur maður sem sýndi ávallt sitt breiða bros, þakklæti og styrkleika. Við getum seint þakkað honum fyrir ómetanlegt framlag við að gera upp húsið Nesið á Látrum í Aðalvík, ganga frá því fyrir veturinn og opna það fyrir sumarið. Jóni Frey þótti afskaplega vænt um Látra og lagði þar mikið og óeigingjarnt starf af mörkum fyrir okkur og aðra sem eiga þar samastað.

Þótt Jón Freyr sé ekki lengur meðal okkar þá mun hann ekki gleymast Látrafólki eða okkur frænkunum. Hann mun ávallt vera með okkur á Látrum og þar munum við heiðra minningu hans með því að brosa upp til himins og þakka fyrir þann tíma sem við fengum með honum. Styrkur sé með ykkur elsku Matthildur og fjölskylda. Missir ykkar undanfarna mánuði er meiri en orð fá lýst.

Íris Björg Kristjánsdóttir, Margrét Sæmundsdóttir

og Unnur Berglind

Friðriksdóttir.

Elskulegur vinur okkar Jón Freyr er látinn og söknuður yfirtekur hugann. Þá er gott að eiga óteljandi dýrmætar minningar. Þær raðast eins og perlur á minningabandi. Fyrstu kynni okkar af Jóni og Matthildi voru í Hjónaklúbbnum Laufinu. Við tókum strax eftir þeim, afburðadansarar sem höfðu lært þjóðdansa og verið í sýningarhópum. Jón var formaður Laufsins í fjögur ár. Dansinn var rauði þráðurinn í okkar kynnum frá 1981. Þau hjónin voru í forsvari fyrir hjónahópi úr Laufinu sem fór í danskennslu hjá Sigurði Hákonar danskennara og þar vorum við í mörg ár. Kjarni hópsins tengdist vináttuböndum og varð að sýningarhópi í samkvæmisdönsum. Jón og Matthildur voru leiðtogar hópsins. Margar ógleymanlegar minningar þar ásamt danskeppnum. Við fylgdumst að í dansinum til Jóhanns Arnar Ólafssonar danskennara, þau hjónin voru með okkur þar fram í nóvember 2019. Við þökkum fyrir öll ferðalögin. Kanarí síbreytileg þó sami staður væri. Dansað á hverju kvöldi við lifandi tónlist og Pragferðin er ógleymanleg.

Innanlands eru það ferðirnar í Aðalvík á æskustöðvar Matthildar sem er ómetanlegt að hafa upplifað. Að ganga á Straumnesfjall og til baka niður Öldudalinn. Ganga til Hesteyrar fram og til baka sama dag. Við drukkum í okkur fegurð og fróðleik og fórum að skilja ykkar sterku tengsl við þennan fallega stað. Rebbi elti okkur í myrkrinu með sín glampandi augu þegar við vorum á heimleið. „Engin ástæða að vera smeyk,“ sagði Jón, „refurinn fylgir okkur að landamærum síns óðals.“ Það stóð eins og stafur á bók. Við vorum líka í Aðalvík í svölum júnímánuði og saman var byggður beitningaskúrinn í fjörunni fyrir fjórhjólið. Þarna voru Jón og Dóri sem einn maður í sinni sterku og hlýju vináttu.

Jón var kennari að mennt og síðar skólastjóri Laugarnesskóla, stjórnarmaður í Barnavinafélaginu Sumargjöf og formaður 1980-2018. Félagi í Heklureglu Musterisriddara og gegndi þar mörgum trúnaðarstörfum. Hann var sannkallaður þúsundþjalasmiður, ljósmyndir hans eru ótalmargar og sýna hans glögga auga, framkallaði og fullvann sínar myndir í fjölmörg ár. Jón unni heilbrigðu líferni, gönguferðum og sundi. Þegar eftirlaunaaldurinn tók við fóru þau hjónin að stunda líkamsrækt í World Class í Laugum og við tókum þátt í því. Margt ræddum við á brettinu, gerðum áætlanir og fundum lausnir. Einfaldlega gæðastundir fyrir líkama og sál. Í sorginni erum við þakklát fyrir að hafa átt samleið í vináttu og gleði.

Jón var gæfumaður í sínu lífi, þau Matthildur voru samhent og kunnu að láta drauma sína rætast. Þau eignuðust tvö börn, Þórólf og Vilborgu. Það var þeim mikil sorg þegar Vilborg lést eftir erfið veikindi 22. nóvember sl. Jón var þá orðinn mjög veikur. Það var því stutt á milli mikilla áfalla í fjölskyldunni. Matthildur annaðist sinn mann af mikilli natni og ótrúlegri orku fram á síðasta dag. Elsku Matthildur, Þórólfur og fjölskyldur, innilegar samúðarkveðjur, megi allar góðar vættir styrkja ykkur í sorginni. Falleg minning lifir.

Helga og Halldór (Dóri).

Jón Freyr var herrann og Matthildur var daman.

Svona er tekið til orða þegar talað er um danspör í samkvæmisdansi. Þau kynntust um miðja síðustu öld þegar þau voru leidd saman á dansgólfinu. Þá voru þau ung að árum og allt lífið fram undan. Á dansgólfinu hafa orðið töfrar því þau ákváðu að dansa saman í gegnum lífið.

Haustið 1989 fékk ég ungur það hlutverk að kenna þeim dans. Ég var lærlingur hjá Sigurði Hákonarsyni og fékk að spreyta mig í Laufshópnum sem var hópur hjóna sem komu saman í Auðbrekkunni á hverju þriðjudagskvöldi. Jón Freyr og Matthildur voru þá rúmlega fimmtug með áratuga dansreynslu og kennarar og skólastjórnendur sjálf. Frá fyrsta tíma voru þau mitt helsta hvatafólk. Þau fögnuðu því að 18 ára unglingur fengi verkefnið, hrósuðu mér óspart og hvöttu mig til dáða. Þau tóku þátt í danskeppnum og sinntu áhugamálinu af lífi og sál. Þau áttu dansföt og –kjóla og þegar keppnisferlinum lauk tóku við ótal danssýningar þar sem þau sýndu ásamt öðrum pörum úr hópnum og enn og aftur fékk ég að aðstoða hópinn. Eitt haustið fékk Jón Freyr mig til að kenna dans í Laugarnesskóla með hvatningu og hrósi.

Haustið 1993 var ég nýútskrifaður danskennari og stofnaði minn eigin dansskóla, Danssmiðjuna. Danspörin í Laufshópnum ákváðu þá að segja skilið við Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar og greiddu atkvæði um hvert skyldi sækja námskeið. Mjótt var á munum en úr varð að hópurinn skráði sig í Dansskóla Jóns Péturs og Köru. En aðeins einn vetur því næsta haust var málið tekið upp aftur og nú skráðu öll pörin sig á námskeið í Danssmiðjunni og ég fékk aftur að annast kennsluna. Mér segir svo hugur að Jón Freyr og Matthildur hafi haft mikið um þetta að segja og á þau var hlustað og þeirra fordæmi gjarnan fylgt. Á hverju hausti eftir þetta mættu Jón Freyr og Matthildur snemma í fyrsta tíma og þessi brosmildi maður kom gangandi teinréttur og glæsilegur, tók þétt í hönd mér og sagði mér hversu óskaplega glaður hann væri að dansinn væri aftur að byrja. Hann elskaði að komast á dansgólfið eftir gott sumar til að dansa við Matthildi, rifja upp sporin og læra eitthvað nýtt og spennandi. Um vorið þegar síðasti tíminn var búinn kom svo þétt faðmlag og endalaust þakklæti: Takk fyrir að leyfa okkur að koma á hverju hausti. Takk fyrir að halda áfram með dansskólann svo við getum mætt. Takk fyrir að kenna okkur.

Eftir um það bil eitt þúsund danstíma og ánægjustundir er komið að mér að þakka. Takk kæri Jón Freyr og elsku Matthildur fyrir að leyfa mér að blómstra sem danskennari. Takk fyrir að sýna mér með ykkar einstöku framkomu hvernig á að koma fram við náungann. Takk fyrir vináttuna. Takk fyrir tryggðina. Takk fyrir allt hrósið og hvatninguna. Takk fyrir dansinn. Takk Jón Freyr fyrir litla fuglinn sem þú skarst út og gafst henni Theu minni. Takk fyrir samfylgdina í rúm þrjátíu ár. Takk fyrir mig. Guð styrki elsku Matthildi, sem allt í einu hefur ekki dansfélaga og sér á eftir sínum besta vini og eiginmanni. Guð blessi minningu Jóns Freys Þórarinssonar.

Jóhann Örn Ólafsson.

Kveðja frá Reglu Musterisriddara

Í dag minnumst við Jóns Freys Þórarinssonar sem lést 21. desember 2019, eftir langvarandi veikindi. Jón gerðist Musterisriddari árið 1989. Hann gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir Regluna og sat í Meistararáði sem siðameistari Reglunnar í átta ár. Árið 2013 tók hann 11. stig Reglunnar, sem er heiðursstig Reglunnar. Jón Freyr var traustur félagi, skyldurækinn, fórnfús, árvakur og staðfastur starfsmaður Musterisins. Hann hafði sterka útgeislun og gaf af sér kærleika, umhyggju og vandvirkni í öllu sínu starfi og gagnvart öllum þeim sem voru honum samferða á lífsleiðinni. Hann var fyrirmynd fyrir þá sem komu nýir í Regluna og ekki síður okkur hina bræðurna. Hans verður sárt saknað og stórt skarð höggvið í bræðrahópinn.

Eiginkona Jóns og lífsförunautur, Matthildur G. Guðmundsdóttir, studdi hann dyggilega í Reglunni og hefur tekið virkan þátt í störfum eiginkvenna Musterisriddara í systrafélagi Reglunnar, Iðunni.

Kæra Matthildur, innilegar samúðarkveðjur til þín og fjölskyldunnar og þakklæti fyrir störf þín í þágu Reglunnar. Blessuð sé minning Jóns Freys Þórarinssonar.

Fyrir hönd Reglu Musterisriddara RM Heklu,

Stefán Þór Kjartansson.

Vinur, Jón Freyr, hefur kvatt okkur.

Leiðir okkar lágu saman í Kennaraskólanum og mynduðum við traust vinatengsl sem aldrei hafa rofnað. Það voru forréttindi að vera samvistum við slíkan mann sem var reglusamur, heiðarlegur og vandvirkur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Við vorum ekki bara skólafélagar, við vorum vinnufélagar, ferðafélagar og eyddum mörgum frístundum saman á námsárunum. Ekki varð hjá því komist að smitast af hans verðleikum og meðtaka þá í eigin hegðun. Þökk sé þér, Jón, fyrir þinn hluta í mínu lífi. Það var ekki tímabært að kveðja þig nú við áttum ýmislegt ógert saman. Ég sendi fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur og bið Guð að styrkja þau.

Guðmundur og Hildur.

Í dag kveðjum við Jón Frey, fyrrverandi skólastjóra Laugarnesskóla. Jón Freyr hefur frá upphafi skólagöngu sinnar verið tengdur Laugarnesskóla sem nemandi, kennari, yfirkennari og síðar sem skólastjóri. Laugarnesskóli er því skólinn hans. Jón Freyr var okkur öllum í Laugarnesskóla kær. Hann var opinn, indæll, jákvæður, fylginn sér og síungur. Jón Freyr var góðmenni sem bar hag barna fyrir brjósti. Hann mat manngildi eins og trúmennsku, heilindi og stundvísi mikils og kom þeim gildum áfram bæði til nemenda og starfsmanna. Það vitum við sem störfuðum með honum og heyrum líka bæði frá fyrri nemendum Laugarnesskóla og foreldrum þeirra. Jón Freyr mátti muna tímana tvenna sem kennari og síðar skólastjóri. Hann stýrði skólanum farsællega gegnum þær miklu breytingar sem urðu á ferli hans en lagði ávallt áherslu á hefðir skólans sem einkenna skólann enn í dag svo sem morgunsöng, palldagskrár og listir. Í dag er enn sunginn morgunsöngur á hverjum degi og er hann ásamt framsæknu skólastarfi eitt af aðalsmerkjum skólans. Honum var umhugað um að uppbygging og þróunarstarf sem kennarar höfðu unnið að í Katlagili í áratugi yrði áfram öflugt eftir að hann lauk störfum við skólann. Skógrækt og ferðir nemenda í Katlagil eru enn sem fyrr mikilvægur þáttur í skólagöngu nemenda Laugarnesskóla.

Jón Freyr var talsmaður hollra lifnaðarhátta og hreyfingar. Hann kom á danskennslu við Laugarnesskóla og foreldrum var boðið á danssýningar til að sjá afrakstur kennslunnar. Jón Freyr stóð líka fyrir danskennslu í morgunsöng. Nemendur vissu hvenær til stóð að dansa í morgunsöng því Jón Freyr mætti í danspeysunni og þá voru allir tilbúnir að fylgja honum eftir. Frumkvöðlastarf Jóns Freys í danskennslu er haldið í heiðri við skólann sem og á danssýningum.

Jón Freyr var alla tíð fróður og áhugasamur um skólamál, fræðslu, félagsstarf og velferð barna. Hann þekkti sögu skólans óvenju vel og hélt til haga gögnum og minningum um Laugarnesskóla í afmælisriti skólans. Alla tíð var gott að leita til hans og honum fannst gaman að spjalla um skólasöguna og fræðslustarfið. Hlýja, velvild og áhugi hans á starfi skólans og okkur samstarfsfólkinu leyndi sér ekki. Jón Freyr hélt áfram að eiga samskipti við starfsfólk skólans bæði með því að halda utan um sögu hans og með tíðum heimsóknum í skólaselið Katlagil. Jón Freyr missti því aldrei tengsl sín við Laugarnesskóla. Hans verður sárt saknað á viðburðum skólans hvort sem er á jólagleði eða við merk tímamót. Elsku Matthildur og fjölskylda, ykkar missir er mikill og við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Fyrir hönd starfsfólks Laugarnesskóla,

Sigríður Heiða Bragadóttir, skólastjóri Laugarnesskóla.

Að horfa á lífið streyma áfram, vini hverfa á braut, er nokkuð sem enginn fær breytt og er órjúfanleg hringrás þess að fæðast, lifa og deyja. Sumir skilja eftir sig stór spor, aðrir minni. Jón Freyr var einn af þeim sem skilja eftir sig stórt spor, hann var vinmargur og átti trausta og góða fjölskyldu. Jón var einn af bestu vinum foreldra minna, Önnu og Árna Norðfjörð, og snerti líf þeirra um margra áratuga skeið, í samfylgd sinnar kæru eiginkonu, Matthildar. Þau hjón voru órjúfanlegur hluti af félagsskap sem foreldrar mínir tilheyra, Laufinu, og einnig tilheyrði Jón Musterisriddarareglunni með Árna föður mínum. Minning mín um Jón er björt, hann var geislandi manngerð, vel gefinn, dagfarsprúður og yfirmáta kurteis við alla sína samferðamenn. Hann hefur án efa verið frábær kennari. Kynni mín af Jóni og Matthildi hafa verið afar ánægjuleg og ég er þakklát fyrir þann trausta vinskap sem þau hafa auðsýnt foreldrum mínum í gegnum langa ævi. Það er sárt að horfa á eftir svo traustum og vel gerðum vini sem Jón Freyr var þeim en björt minning um góðan mann lýsir og lifir áfram í samferðafólki hans.

Ég votta Matthildi og fjölskyldu Jóns mína dýpstu samúð.

Guð blessi minninguna um Jón Frey Þórarinsson.

Sigrún Birna Norðfjörð.