Samstarfssamningur Verkfræðingafélags Íslands ( VFÍ ) og Vísindasmiðju Háskóla Íslands hefur verið endurnýjaður. Í krafti hans verður á árinu unnið að tilraunaverkefni í samstarfi við félagsmiðstöðvar um þróun fræðsluverkefna á sviði vísinda og tækni.
Formlegt samstarf fyrrgreindra aðila hófst haustið 2018 og þá var hafist handa við að útbúa fræðsluefni fyrir kennara og nemendur um forritun. Í fyrra var útbúið fræðsluverkefni fyrir skóla um loftslagsbreytingar og hverfist það verkefni um notkun þekkingar til að finna lausnir tengdar orkunotkun.
Nú hefur samstarfssamningur verið staðfestur þriðja árið í röð og var hann undirritaður í upphafi nýs árs af Svönu Helen Björnsdóttur, formanni Verkfræðingafélagsins, og Jóni Atla Benediktssyni, rektor HÍ.
Að þessu sinni er á döfinni tilraunaverkefni í samstarfi við félagsmiðstöðvar um þróun fræðsluverkefna sem getur farið fram á þeirra vettvangi. Einnig er gert ráð fyrir að Vindasmiðjan taki sem fyrr þátt í Fjölskyldudegi verkfræðinnar í ágúst.
Fjölmargir viðburðir
Vísindasmiðja HÍ var opnuð vorið 2012 með aðsetur í Háskólabíói. Starfsemin fer líka að miklu leyti fram í farandsmiðjum af margs konar tagi, til dæmis í Hörpu, á bókasöfnum, í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík og víðar. Leiðbeinendur í Vísindasmiðjunni eru kennarar og nemendur HÍ og er hún opin grunnskólahópum fjóra daga vikunnar, þeim að kostnaðarlausu.Áætlað er að hátt í 30 þúsund grunnskólabörn hafi nú heimsótt Vísindasmiðjuna og tekið þátt í viðburðum smiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu og í Háskólalestinni.