Framkvæmdir Tvær stórar byggingar, ný slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja og Marriott hótel, rísa nú við Reykjanesbraut og ganga framkvæmdir vel.
Framkvæmdir Tvær stórar byggingar, ný slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja og Marriott hótel, rísa nú við Reykjanesbraut og ganga framkvæmdir vel. — Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Úr bæjarlífinu Svanhildur Eiríksdóttir Reykjanesbær Ég vil byrja á því að óska lesendum gleðilegs nýs árs í þessum fyrsta bæjarlífspistli ársins. Það er engin nýlunda að áramót séu uppskeruhátíð en jafnframt boðun um betri tíma.

Úr bæjarlífinu

Svanhildur Eiríksdóttir

Reykjanesbær

Ég vil byrja á því að óska lesendum gleðilegs nýs árs í þessum fyrsta bæjarlífspistli ársins.

Það er engin nýlunda að áramót séu uppskeruhátíð en jafnframt boðun um betri tíma. Í rekstri bæjarins þótti undir árslok ljóst að vel hafði tekist til árið 2019 í að rétta úr kútnum og fá íbúar m.a. að njóta þess. Tilkynning barst frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sl. mánudag um að aðlögunaráætlun, sem bærinn hefur unnið eftir frá því í apríl 2017, væri fallin úr gildi og að Reykjanesbær væri laus undan sérstöku eftirliti nefndarinnar. Það er tveimur árum fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Fasteignaskattur af heildar fasteignamati íbúðarhúsa lækkaði úr 0,36% í 0,321% um áramót. Hvatagreiðslur til niðurgreiðslu á skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi voru hækkaðar úr 28.000 krónum í 35.000 í upphafi nýs árs og aukinn stuðningur verður við afreksíþróttafólk og íþróttafélögin á þessu ári, svo eitthvað sé nefnt.

Á gamlársdag var íþróttafólk úr Reykjanesbæ heiðrað í hófi sem fram fer í íþróttahúsinu í Njarðvík ár hvert. Í ár var það sundfólkið Karen Mist Arngeirsdóttir og Már Gunnarsson sem var kjörið íþróttafólk Reykjanesbæjar árið 2019. Alls fékk 31 íþróttamaður viðurkenningu frá Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar (ÍRB) í hófinu.

Már hefur átt geysigóða spretti á undanförnum mánuðum og er viðurkenning ÍRB bara ein af fáum. Í upphafi þessa árs útnefndu Víkurfréttir Má mann ársins á Suðurnesjum.

Már hefur þó ekki eingöngu verið áberandi sem íþróttamaður heldur ekki síður sem tónlistarmaður. Hann ætlar að halda tónleika í Hljómahöll 13. mars þar sem systir hans, Ísold Wilberg Antonsdóttir, og Sigríður Thorlacius munu syngja með við undirleik þekktra pólskra hljóðfæraleikara.

Og það er sitthvað fleira fram undan hjá íþróttafólki og stuðningsmönnum. Hin sívinsælu þorrablót íþróttafélaganna Keflavík og UMFN eru fram undan og að venju er uppselt langt fram í tímann. Þorrablót Keflavíkur fer fram 18. janúar og UMFN 1. febrúar.

Fram undan er einnig heimsviðburður í Hljómahöll þegar breska hljómsveitin Tindersticks heldur tónleika þar 7. febrúar. Hljómsveitin hefur áður haldið tónleika á Íslandi, á Nasa árið 2008, við mikinn fögnuð aðdáenda. Meðlimir sveitarinnar eru því fyrir löngu orðnir Íslandsvinir og spenningur yfir komu þeirra nú síst minni en fyrir rúmum 11 árum.

Allir sem ekið hafa Reykjanesbrautina í átt að flugvellinum á undanförnum mánuðum hafa tekið eftir tveimur stórum byggingum sem hafa risið hratt á móti hvor annarri. Annað þeirra er Courtyard by Marriott hótel sem Aðaltorg er að byggja en hitt er ný slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja.

Ris hótelsins hefur vakið töluverða athygli fyrir hraða uppbyggingu. Skýringin er sú að steyptar einingar þess komu til landsins frá Kína með flutningaskipi sem lagðist að bryggju við Helguvíkurhöfn 5. ágúst sl. Að sögn Einars Þórs Guðmundssonar í viðskiptaþróun Aðaltorgs hafa framkvæmdir gengið vel, en áætlað er að opna hótelið á vormánuðum.

Í Courtyard by Marriott-flugvallarhótelinu eru 150 herbergi, ásamt veitinga- og þjónusturýmum. Áætlanir Aðaltorgs gera ráð fyrir að önnur veitingar- og þjónusturými en þau sem tilheyra hótelinu verði tilbúin í sumar. Einar Þór segir einkar ánægjulegt að stærsti hluti verktaka við framkvæmdina eru af Suðurnesjum og því sé um sannkallað Suðurnesjaverkefni að ræða.

Mikil bylting verður í starfsumhverfi Brunavarna Suðurnesja (BS) þegar ný slökkvistöð verður tekin í notkun í sumarbyrjun. Að sögn Jóns Gunnlaugssonar slökkviliðsstjóra er áætluð verklok í maí en svo getur tekið allt að mánuð að koma sér fyrir. „Með þessari nýju slökkvistöð verður staðsetning eins og best verður á kosið. Að auki verður aðgerðarstjórnstöð Almannavarna Suðurnesja í stöðinni og við munum koma öllum okkar tækjum fyrir í húsinu.“

Gott aðgengi er frá hinni nýju slökkvistöð til allra hinna sveitarfélaganna á Suðurnesjum sem BS þjónar. Bæði verður auðvelt að komast innanbæjar í Reykjanesbæ og svo beint upp á Reykjanesbraut og þaðan til Suðurnesjabæjar, Grindavíkur og Voga.