Courteney Cox hefur engu gleymt.
Courteney Cox hefur engu gleymt.
Sjónvarp Courteney Cox, sem frægust er fyrir að hafa leikið Monicu í hinum ástsæla gamanþætti Vinum, mun bregða fyrir í lokaseríunni af Modern Family, öðrum vinsælum bandarískum gamanþætti sem mun renna sitt skeið á enda á árinu sem er nýhafið.
Sjónvarp Courteney Cox, sem frægust er fyrir að hafa leikið Monicu í hinum ástsæla gamanþætti Vinum, mun bregða fyrir í lokaseríunni af Modern Family, öðrum vinsælum bandarískum gamanþætti sem mun renna sitt skeið á enda á árinu sem er nýhafið. Mun hún þar leika sjálfa sig, ef svo má að orði komast, í senu þar sem sparkgoðið David Beckham kemur einnig við sögu. Lítið hefur farið fyrir Cox undanfarin ár en í fyrra átti hún þó stórleik sem áfengissjúk leikkona í spédramanu Shameless. Beckham hefur ekki verið þekktur fyrir leiksigra fram að þessu en mögulega breytist það nú. Eða ekki.