Elvar Már Friðriksson heldur áfram að fara á kostum með Borås í efstu deild Svíþjóðar í körfuknattleik, en hann átti enn einn stórleikinn þegar liðið vann 100:92-útisigur gegn Wetterbygden Stars í gær.
Elvar Már Friðriksson heldur áfram að fara á kostum með Borås í efstu deild Svíþjóðar í körfuknattleik, en hann átti enn einn stórleikinn þegar liðið vann 100:92-útisigur gegn Wetterbygden Stars í gær. Elvar var stigahæstur í liði Borås með 19 stig og þá tók hann einnig fjögur fráköst og gaf níu stoðsendingar fyrir sænska liðið á þeim tæpu 28 mínútum sem hann lék. Borås hefur nú tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar með 36 stig. Köping Stars er í öðru sætinu með 34 stig en liðið á leik til góða á Borås.