Bikarinn Tottenham lenti í erfiðleikum gegn Middlesbrough.
Bikarinn Tottenham lenti í erfiðleikum gegn Middlesbrough. — AFP
C-deildarliðið Shrewsbury tryggði sér í gær sæti í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta með 1:0-sigri á heimavelli gegn Bristol City úr B-deildinni í endurteknum leik úr 3. umferð.

C-deildarliðið Shrewsbury tryggði sér í gær sæti í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta með 1:0-sigri á heimavelli gegn Bristol City úr B-deildinni í endurteknum leik úr 3. umferð. Shrewsbury er eitt minnsta félagið í C-deildinni og fær liðið sannkallaðan draumaleik gegn Liverpool á heimavelli í næstu umferð hinn 26. janúar.

Lærisveinar Josés Mourinhos hjá Tottenham eru einnig komnir áfram eftir sigur á Middlesbrough úr B-deildinni, 2:1, og Newcastle vann sannfærandi 4:1 sigur á C-deildarliði Rochdale.