[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Kollavíkurvatn við Þistilfjörð fylltist af sjó í óveðri um miðjan desember og vegna þrýstings gaf mölin á milli vatns og sjávar sig með þeim afleiðingum að þar er nú um 60 til 70 metra breitt skarð sem fer stækkandi. Lán í óláni er að þarna getur orðið besta hafnarsvæði norðausturhornsins, að sögn Eiríks Kristjánssonar, bónda í Borgum.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Kollavíkurvatn við Þistilfjörð fylltist af sjó í óveðri um miðjan desember og vegna þrýstings gaf mölin á milli vatns og sjávar sig með þeim afleiðingum að þar er nú um 60 til 70 metra breitt skarð sem fer stækkandi. Lán í óláni er að þarna getur orðið besta hafnarsvæði norðausturhornsins, að sögn Eiríks Kristjánssonar, bónda í Borgum.

Eiríkur hefur búið í Borgum alla sína tíð og man ekki eftir öðru eins brimi. Hann segir að í norðaustan bálviðrinu hafi yfirborð vatnsins hækkað vel á annan metra og sprengt skarð í mölina. Fari allt á versta veg megi ætla að skarðið haldi áfram að stækka og ferskvatnið verði hluti af söltum sjó. „Mölin hefur verið að smáminnka og þar sem vatnið er djúpt hefur sjórinn ýtt henni inn og sópað henni niður,“ segir hann. „Óvíst er að hann nái að grafa hana upp aftur.“

Yfirborð Kollavíkurvatns hefur stundum hækkað vegna úrkomu og einu sinni gerði Eiríkur frárennsli á öðrum stað í mölinni til þess að bjarga æðarvarpinu. Hann segir að sjórinn hafi áður gert skarð í mölina en þá hafi verið að minnsta kosti metri niður í vatn og ekki runnið úr því.

Að sögn Eiríks hefur verið mikil silungsveiði í vatninu alla tíð en verði skarðið viðvarandi sé hætt við að silungurinn hverfi. „Haldi mölin áfram að brotna getur þetta orðið mjög gott hafnarsvæði,“ segir hann. Bætir við að sjórinn velti mölinni inn í vatnið, sem sé hyldjúpt. „Sex metrar eru niður á leðju og reynt hefur verið að mæla þykkt hennar en enginn hefur komist niður á botn. Dýpið getur þess vegna verið 20 til 30 metrar.“

Eiríkur segir að svæðið henti sérstaklega vel fyrir höfn enda aðdjúpt fyrir utan mölina. „Hyldjúpur áll liggur hérna inn,“ áréttar hann. Segir að lendingin hafi verið frekar léleg, því brimasamt sé utan við mölina en verði vatnið hluti hafs bjóði það upp á allt aðra og betri möguleika. „Héðan er gott að róa á sjó og hér mætti reisa mikilvæga útflutningshöfn. Nóg er til dæmis af vatninu sem flytja má út. Hvað sem verður er ljóst að breytingin verður mikil.“