Sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson leikur við hvern sinn fingur og er þekktur fyrir að koma fólki í stuð.
Sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson leikur við hvern sinn fingur og er þekktur fyrir að koma fólki í stuð. — Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Tónlistarmaðurinn Geirmundur Valtýsson ökklabrotnaði um helgina og hefur því þurft að aflýsa skemmtunum í kvöld og á laugardagskvöld auk þess sem óvíst er með fyrirhugaða viðburði það sem eftir lifir mánaðar og í næsta mánuði.

„Ég er svo truflaður að ég ligg á sjúkrahúsinu norður á Akureyri,“ sagði Geirmundur, þegar slegið var á þráðinn til hans í gær.

Óðveðrið að undanförnu hefur tekið sinn toll. Um helgina var svo komið að sex strengja hestagirðing á Geirmundarstöðum í Sæmundarhlíð í Skagafirði var nánast á kafi í snjó og því ætlaði Geirmundur að bæta við tveimur gaddavírsstrengjum, svo hestarnir kæmust ekki út.

Stund gafst á milli stríða í hádeginu á sunnudaginn til þess að laga girðinguna og Geirmundur nýtti sér „svikalognið“. „Veðrið var fínt og sem ég ætlaði að ná í gaddavírshönk til þess að reyna að setja fyrir hrossin mín missti ég fótanna á leiðinni inn í braggann og skall á hnakkann. Ég hefði ekki orðið hissa ef ég hefði höfuðkúpubrotnað en skil ekki hvernig ég gat ökklabrotnað. Ég gekk með broddstaf í hægðum mínum, vissi vel af hálkunni, því hún er alls staðar, en sennilega hefur lítil snjóföl yfir ísnum villt mér sýn.“

„Ógeðslega heppinn“

Í fyrstu vildi Geirmundur ekkert gera í þessu, en svo fór að hann fór á sjúkrahúsið á Sauðárkróki um kvöldið og var svo fluttur til Akureyrar morguninn eftir. „Fóturinn á mér skekktist og það skil ég ekki heldur,“ heldur tónlistarmaðurinn áfram. Vegna þessa fór hann í aðgerð til þess að rétta fótinn, en ráðgert er að skera hann upp vegna brotsins í næstu viku.

Geirmundur átti að spila í Húnaveri í kvöld og á þorrablóti í Miðgarði á laugardag. „Ég get augljóslega ekki mætt, hef slegið þetta af, og óvíst er með ball á Kringlukránni 1. febrúar. Vonandi kemst ég í brúðkaup í Reykjavík um miðjan næsta mánuð. En það kemur í ljós. Ég kann ekki á svona, hef aldrei slasast á þennan hátt.“

Geirmundur hefur sungið og spilað fyrir landann í yfir 60 ár og alltaf verið tilbúinn í slaginn, þar til hann missti aðeins úr í haust vegna veikinda. „Þá fékk ég einhverja sýkingu og var frá í fyrsta skipti, gat ekki skemmt um Laufskálaréttarhelgina. Ég hef verið „ógeðslega heppinn“, eins og krakkarnir segja, en svo gerist þetta allt í einu.“