60 ára Reynir er Akureyringur en býr í Reykjavík. Hann er tæknifræðingur frá Tækniskólanum og lauk meistaragráðu í byggingaverkfræði frá DTU í Kaupmannahöfn. Reynir er yfirverkfræðingur hjá Ístaki. Maki : Anna Margrét Björnsdóttir, f.
60 ára Reynir er Akureyringur en býr í Reykjavík. Hann er tæknifræðingur frá Tækniskólanum og lauk meistaragráðu í byggingaverkfræði frá DTU í Kaupmannahöfn. Reynir er yfirverkfræðingur hjá Ístaki.

Maki : Anna Margrét Björnsdóttir, f. 1962, skjalastjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Synir : Björn Reynisson, f. 1984, og Birkir Reynisson, f. 1991. Barnabarn er Salka Björnsdóttir, f. 2013.

Foreldrar : Viðar Helgason, f. 1938, d. 1989, trésmíðameistari á Akureyri, og Birna Eiríksdóttir, f. 1937, d. 2011, húsmóðir á Akureyri.