Sveitungar Hilmar Gunnarsson frá Mosfellingi, t.v., afhendir nafna sínum Elíssyni viðurkenningu.
Sveitungar Hilmar Gunnarsson frá Mosfellingi, t.v., afhendir nafna sínum Elíssyni viðurkenningu. — Ljósmynd/Aðsend
Hilmar Elísson hefur verið útnefndur Mosfellingur ársins 2019, en hann bjargaði sundlaugargesti frá drukknun í Lágafellslaug á síðasta ári. Hilmar er fastagestur í lauginni og var að synda í lauginni að lokinni æfingu 28.

Hilmar Elísson hefur verið útnefndur Mosfellingur ársins 2019, en hann bjargaði sundlaugargesti frá drukknun í Lágafellslaug á síðasta ári. Hilmar er fastagestur í lauginni og var að synda í lauginni að lokinni æfingu 28. janúar í fyrra þegar hann kom auga á mann á botninum og sá strax að ekki var allt með felldu. „Ég kafaði eftir manninum, það tókst ekki í fyrstu tilraun en í annarri tilraun náði ég til hans. Ég kallaði svo á hjálp við að koma manninum upp á bakkann,“ segir Hilmar, sem var svo sannarlega réttur maður á réttum stað, segir í tilkynningu frá Mosfellingi – bæjarblaðinu sem stóð fyrir þessari árlegu útnefningu.

„Það var heppilegt að á staðnum var maður sem starfað hefur sem slökkviliðsmaður í fjöldamörg ár og kunni vel til verka í svona aðstæðum. Okkur tókst að koma manninum upp á bakkann og þá hófust strax lífgunartilraunir. Það leið í það minnsta mínúta þar til hann fór að sýna smá lífsmark. Sjúkraflutningamennirnir voru fljótir á staðinn enda gott að vita af þeim í nágrenninu,“ segir Hilmar, sem lýsir viðbrögðum sínum sem ósjálfráðum. Sjokkið hafi hreinlega komið eftir á.

„Þetta er ekki skemmtileg upplifun en það var gott að allt fór vel og allir aðilar sem komu að þessu, starfsmenn og aðrir, stóðu sig með prýði. Ég var bara einn hlekkur í keðju sem vann gott verk,“ segir Hilmar um þetta mikla afrek sitt. sbs@mbl.is