Slökkviliðið í Vestmannaeyjum var ræst út í hádeginu í gær þegar tilkynnt var um eld í ökutæki sem lagt hafði verið í stæði nálægt húsnæði við Hásteinsveg.
Slökkviliðið í Vestmannaeyjum var ræst út í hádeginu í gær þegar tilkynnt var um eld í ökutæki sem lagt hafði verið í stæði nálægt húsnæði við Hásteinsveg. Þegar slökkvilið kom á vettvang var mikill hiti og reykur í bílnum og laus eldur í vélarrými sem var farinn að teygja sig í mælaborðið. Frá þessu greindi slökkviliðið í færslu á Facebook. Þar kom fram að eldurinn hefði verið slökktur fljótt með handslökkvitæki en til frekara öryggis var vatni frá dælubíl sprautað yfir og vettvangur kældur niður. „Ljóst er að ekki mátti muna miklu að bíllinn yrði alelda með tilheyrandi hættu fyrir nærliggjandi húsnæði. Eldsupptök eru ókunn en grunur leikur á að kviknað hafi í út frá miðstöð bílsins,“ sagði í færslunni.