Í tilefni af 10 ára afmæli Frystiklefans á Rifi ætlar Kári Viðarsson, í samstarfi við fjölmarga bakhjarla og velunnara, að gefa öllum sem eru með lögheimili í Snæfellbæ ársmiða sem gildir á alla viðburði ársins 2020.
Í tilefni af 10 ára afmæli Frystiklefans á Rifi ætlar Kári Viðarsson, í samstarfi við fjölmarga bakhjarla og velunnara, að gefa öllum sem eru með lögheimili í Snæfellbæ ársmiða sem gildir á alla viðburði ársins 2020. „Með þessu sendum við þakkir til samfélagsins,“ segir á Facebook-síðu Frystiklefans og bent á að þessi tímamótagjöf eigi sér enga hliðstæðu í íslenskri lista- eða menningarsögu. „Án ykkar mætingar og stuðnings væri starf okkar tilgangslaust,“ er skrifað og lofað skemmtilegu ári með geggjuðum listamönnum.