Suðureyri Ekki sást yfir fjörðinn í gær þegar myndin var tekin. Snjóflóðið féll norðan fjarðarins og olli flóðbylgju.
Suðureyri Ekki sást yfir fjörðinn í gær þegar myndin var tekin. Snjóflóðið féll norðan fjarðarins og olli flóðbylgju. — Ljósmynd/Valur Valgeirsson
Flóðbylgjur vegna snjóflóða norðan Súgandafjarðar eru þekktar, eins og kemur fram í Hættumati fyrir Suðureyri í Súgandafirði eftir Kristján Ágústsson og Hörð Þór Sigurðsson sem Veðurstofa Íslands gaf út 2004.

Flóðbylgjur vegna snjóflóða norðan Súgandafjarðar eru þekktar, eins og kemur fram í Hættumati fyrir Suðureyri í Súgandafirði eftir Kristján Ágústsson og Hörð Þór Sigurðsson sem Veðurstofa Íslands gaf út 2004.

„Snjóflóð eru algeng úr norðurhlíð fjarðarins og flóðbylgjur vegna snjóflóða við Norðureyri hafa nokkrum sinnum valdið skaða á Suðureyri,“ segir í skýrslunni. Þar kemur og fram að snjóflóð séu einnig algeng í Botnsdal og víðar í firðinum.

Höfundar rekja heimildir um snjóflóð í Súgandafirði allt aftur til Jarðabókar Árna Magnússonar og Páls Vídalín sem skrásett var 1710. Þar er þess getið að snjóflóð séu tíð á norðurströnd Súgandafjarðar. Oftar en einu sinni í manna minnum höfðu þau tekið bæina á Norðureyri og Gilsbrekku.

Mjög stórt snjóflóð féll á Norðureyri árið 1836 og sagt að það hafi farið yfir fjörðinn, en líklega var þar um öldurót að ræða. Sex manns fórust á Norðureyri og braut flóðið bæinn og olli miklum skemmdum. Aftur féll stórt snjóflóð á Norðureyri árið 1882 og olli skaða sunnan fjarðar. Sama er að segja um stórt snjóflóð á Norðureyri sem féll árið 1909. Mikil snjóflóðahrina gekk yfir Vestfirði 1910 og féll snjóflóð við Gölt og að minnsta kosti tvö á Norðureyri. Enn féll snjóflóð á Norðureyri árið 1915 og olli miklum skaða. Eins féll þar snjóflóð árið 1930. Snjóflóðakljúfur hafði verið byggður á stafn hússins fjallmegin og stóð það flóðið af sér en fjárhús brotnuðu og fé drapst. Aftur féll snjóflóð á Norðureyri ári seinna og tók báta.

Í skýrslunni er vitnað í snjóflóðasögu Flateyrar og Önundarfjarðar (Svanbjörg Helga Haraldsdóttir, 2002) þar sem Ólafía Jónsdóttir frá Súgandafirði segir frá mikilli flóðbylgju á Suðureyri vegna snjóflóðs á Norðureyri. Hún féll að húsinu sem Ólafía átti heima í og fór vatn í kjallarann. Þetta gæti hafa átt við um flóðið sem féll 1931.

Enn féll snjóflóð á Norðureyri 1939 og drap kindur og olli flóðbylgju á firðinum. Stórt snjóflóð féll á Norðureyri 1946 og myndaði flóðbylgju sem braut bryggjur á Suðureyri og olli ýmsum skaða þar. Svipaður atburður varð 1951 en olli minna tjóni. Enn féll snjóflóð á Norðureyri 1992 og skemmdi flóðbylgja frá því hafnarmannvirki og báta á Suðureyri.

Mjög stórt snjóflóð féll úr Norðureyrarhlíð 1995, sama dag og mannskætt flóð féll á Flateyri. Það skapaði flóðbylgju sem olli miklu tjóni sunnan fjarðar. gudni@mbl.is