Önfirðingafélagið í Reykjavík hefur boðað til samverustundar í Lindakirkju í Kópavogi í dag vegna snjóflóðanna sem féllu á Flateyri og í Súgandafirði.

Önfirðingafélagið í Reykjavík hefur boðað til samverustundar í Lindakirkju í Kópavogi í dag vegna snjóflóðanna sem féllu á Flateyri og í Súgandafirði.

„Í ljósi atburða síðastliðins sólarhrings heima á Flateyri ætlar Önfirðingafélagið að bjóða upp á huggulega samverustund í safnaðarheimili Lindakirkju,“ segir m.a. á Facebook-síðu félagsins, en samverustundin hefst kl. 17 í dag.

Félagið hvetur Vestfirðinga og aðra á höfuðborgarsvæðinu til að mæta til að spjalla og sýna samfélaginu og hvert öðru stuðning.