Fimm skip munu næstu daga taka þátt í leit að loðnu. Auk rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar taka grænlenska skipið Polar Amaroq og Hákon EA þátt í mælingum á loðnunni. Bjarni Ólafsson AK og Ásgrímur Halldórsson SF taka þátt í verkefninu sem...

Fimm skip munu næstu daga taka þátt í leit að loðnu. Auk rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar taka grænlenska skipið Polar Amaroq og Hákon EA þátt í mælingum á loðnunni. Bjarni Ólafsson AK og Ásgrímur Halldórsson SF taka þátt í verkefninu sem leitarskip. Þrjú fyrstnefndu skipin voru í Neskaupstað í gær og var reiknað með að öll skipin létu úr höfn í gærkvöldi eða síðustu nótt.

„Við gerum ráð fyrir að byrja út af Litladýpi og leita norður með landgrunnsbrúninni og einnig á landgrunninu. Saman munu skipin leita út af Austfjörðum og Norðausturlandi í fyrstu atrennu. Um borð í bæði Polar Amaroq og Hákoni verða þrír starfsmenn frá Hafrannsóknastofnun.

Því miður er veðurútlit ekki sérstaklega gott en það er veðurgluggi næstu daga sem þarf að nýta vel. Því miður ríkir ekki mikil bjartsýni um loðnuvertíð en það er aldrei að vita. Loðnan hefur oft komið mönnum á óvart,“ sagði Birkir Bárðarson, leiðangursstjóri í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.