30 ára Þórður ólst upp á Eystri-Ásum í Skaftártungu en býr í Reykjavík. Hann er með kirkjuorganistapróf frá Tónskóla þjóðkirkjunnar og djassleikarapróf frá New School í New York.
30 ára Þórður ólst upp á Eystri-Ásum í Skaftártungu en býr í Reykjavík. Hann er með kirkjuorganistapróf frá Tónskóla þjóðkirkjunnar og djassleikarapróf frá New School í New York. Þórður er organisti og kórstjóri í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ og kórstjóri Karlakórs Kjalnesinga.

Maki : Dominique Gyða Sigrúnardóttir, f. 1986, leikkona og leikstjóri.

Sonur : Högni Manuel, f. 2019.

Foreldrar : Sigurður Árni Þórðarson, f. 1953, sóknarprestur í Hallgrímskirkju, og Hanna María Pétursdóttir, f. 1954, guðfræðingur og kennari í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði, bús. í Reykjavík.