Fabinho
Fabinho
Fabinho og Joël Matip, leikmenn enska knattspyrnuliðsins Liverpool, eru mættir aftur til æfinga eftir meiðsli. Fabinho lék síðast gegn Napoli 27. nóvember en Matip hefur ekki spilað síðan 20. október.

Fabinho hefur verið að glíma við meiðsli í ökkla en Matip meiddist á hné. Þá er króatíski miðvörðurinn Dejan Lovren nálægt því að vera klár í slaginn eftir meiðsli í læri.

Endurkoma Fabinho kemur á kærkomnum tíma fyrir Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, vegna meiðsla annarra leikmanna. James Milner og Naby Keita eru báðir að glíma við meiðsli og er óvíst hvort þeir verða klárir í slaginn er Liverpool fær erkifjendurna í Manchester United í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.

*Tottenham fékk liðsauka í gær þegar félagið fékk Gedson Fernandes, 21 árs gamlan miðjumann, lánaðan frá Benfica næstu 18 mánuðina. Hann hefur leikið tvo A-landsleiki fyrir Portúgal.