40 ára Magnús er Hafnfirðingur en býr í Njarðvík. Hann er vélvirki að mennt frá Iðnskólanum í Hafnarfirði og útskrifaðist frá Véla- og skipaþjónustunni Framtak. Hann er rörasuðumaður hjá Hagsuðu. Magnús keppir í sandspyrnu og kvartmílu.

Maki : Sara Björk Bess Kristjánsdóttir, f. 1981, flugfreyja hjá Icelandair.

Börn : Hilmar Þór, f. 2000, Hanna Fjóla, f. 2002 og Helga Lilja, f. 2006.

Foreldrar : Finnbjörn Kristjánsson, f. 1955, vélvirki og eigandi Hagsuðu, og Oddný Fjóla Lárusdóttir, f. 1955, sjúkraliði á Landspítalanum í Fossvogi. Þau eru búsett í Hafnarfirði.