Andrea Bocelli
Andrea Bocelli
Tónleikarnir sem voru fyrirhugaðir með hinum ofurvinsæla ítalska söngvara Andrea Bocelli og áttu að fara fram 23. maí næstkomandi í Kórnum í Kópavogi hafa verið færðir og er nú ætlunin að halda þá 3. október í haust.

Tónleikarnir sem voru fyrirhugaðir með hinum ofurvinsæla ítalska söngvara Andrea Bocelli og áttu að fara fram 23. maí næstkomandi í Kórnum í Kópavogi hafa verið færðir og er nú ætlunin að halda þá 3. október í haust. Ástæða frestunarinnar er, eins og gefur að skilja, útbreiðsla kórónuveirunnar og afleiðingar hennar.

Í tilkynningu frá tónleikahöldurum segir að allir miðar sem seldir hafi verið á tónleikana muni gilda á tónleikana 3. október og ekki þurfi að nálgast nýja miða. Ef fólk vill hins vegar fá miða sína endurgreidda á það fullan rétt á því og þarf að fara fram á það við miðasölu með því að senda tölvupóst á netfangið info@tix.is.