Samstöðubolurinn til sölu á childrvk.is
Samstöðubolurinn til sölu á childrvk.is
Þau sem standa að fatamerkinu ChildReykjavik (childrvk.is) hafa sett af stað verkefni til styrktar Kvennaathvarfinu með sölu á stuttermabolum. Tilefnið er sú aukning á heimilisofbeldi sem orðið hefur vegna aðstæðna í samfélaginu.
Þau sem standa að fatamerkinu ChildReykjavik (childrvk.is) hafa sett af stað verkefni til styrktar Kvennaathvarfinu með sölu á stuttermabolum. Tilefnið er sú aukning á heimilisofbeldi sem orðið hefur vegna aðstæðna í samfélaginu. Allur ágóði af sölu Samstöðubolsins rennur óskiptur til Kvennaathvarfsins. Salan hófst síðastliðinn miðvikudag og fer fram á vefsíðunni childrvk.is.