Dýpri tilgangur. V-Enginn
Norður | |
♠76 | |
♥1064 | |
♦ÁKD1054 | |
♣65 |
Vestur | Austur |
♠ÁD5 | ♠G9832 |
♥DG852 | ♥97 |
♦63 | ♦9 |
♣KG8 | ♣Á10932 |
Suður | |
♠K104 | |
♥ÁK3 | |
♦G874 | |
♣D74 |
Suður spilar 3G.
Þótt útspilin séu að hluta til heppnismál ættu spilarar alltaf að leitast við að finna rök fyrir vali sínu, segir Krzysztof Martens. Með öðrum orðum: útspilin eiga að hafa dýpri tilgang en þann einan að koma spilinu af stað.
Að svo mæltu sest lesandinn í vestur og spilar út gegn 3G eftir glaðbeittar sagnir: Opnun á 1♥ í vestur, 3♦ í norður, neikvætt dobl í austur og 3G í suður. Hvert er nú útspilið og af hverju?
Á að spila út hvasst (agressíft) eða stillt (passíft)? Martens óttast að hvasst útspil, eins og til dæmis spaðadrottning, gefi sagnhafa níunda slaginn. Laufið er skárra, segir hann, því makker á líklega annaðhvort ás eða drottningu. En best er að spila stillt út tígli og bíða átekta.
Stigin eru: tígulhundur=10, laufátta=8, hjartadrottning=4, laufkóngur=4, laufgosi=4, spaðadrottning=2, hjartahundur=1.