Svíþjóð Kolbeinn Sigþórsson er farinn að æfa af fullum krafti.
Svíþjóð Kolbeinn Sigþórsson er farinn að æfa af fullum krafti. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kolbeinn Sigþórsson, leikmaður AIK og landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur hafið æfingar á nýjan leik eftir meiðsli. Þetta staðfesti Henrik Jurelius, yfirmaður íþróttamála hjá AIK, við Fotbollskanalen.

„Hann hefur haldið sér við í sóttkví á meðan liðið hefur ekki getað æft og það sést. Kolbeinn æfði með öðrum leikmönnum liðsins í vikunni og án allra takmarkana. Eins og staðan er á honum núna sé ég ekkert því til fyrirstöðu að hann verði klár í slaginn þegar sænska deildin hefst í júní.“