Endurmat snjóflóðavarna fyrir ofan byggðina á Flateyri og gerð framkvæmdaáætlunar þar að lútandi eru forgangsverkefni í aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem ætlað er að treysta atvinnulíf og búsetu á staðnum eftir snjóflóðin í janúar.
Ríkisstjórnin samþykkti á þriðjudaginn að fela þremur ráðuneytum framkvæmd og að fylgja eftir aðgerðum á Flateyri í samræmi við tillögur aðgerðahóps. Hann var skipaður eftir snjóflóðin í janúar 2020. Hópurinn lagði til 15 aðgerðir.
Ríkisstjórnin hefur nú samþykkt að leggja 13 milljónir af ráðstöfunarfé sínu á þessu ári í að fjármagna nýsköpunarstyrki og stöðu verkefnastjóra. Einnig verður 26 milljónum varið í verkefnið á næsta ári. Ráðinn verður verkefnastjóri, staðsettur á Flateyri á vegum Vestfjarðastofu, í samstarfi við Ísafjarðarbæ. Staðan verður auglýst fljótlega.
Samhliða auknum snjóflóðavörnum verða möguleikar á vörnum fyrir hafnarsvæði sem og aðgerðir til að tryggja öryggi vegfarenda um Flateyrarveg við Hvilftarströnd í forgangi. Undirbúningur þessara verkefna er á áætlun en gert er ráð fyrir að Veðurstofan skili tillögum og greinargerð um framkvæmdir fyrir árslok.
Mennta- og menningarmálaráðherra og skólastjóri Lýðskólans á Flateyri undirrituðu samning í febrúar 2020 um 70 milljóna króna framlag ríkisins. Það tryggir rekstur skólans næsta skólaár.
Fleiri aðgerðir eru í vinnslu, svo sem varðandi skipulag og viðbúnað heilbrigðisþjónustu, rafmagnsöryggi og skoðun á leiðum til að bæta almenningssamgöngur milli Flateyrar og annarra byggðakjarna á svæðinu. Þá er stefnt að uppbyggingu heilsugæslusels. gudni@mbl.is