40 ára Íris Björg Birgisdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík en búsett í Garðabæ. Íris Björg er með B.Sc. í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og vinnur sem verkefnastjóri á fjáröflunar- og kynningarsviði Rauða krossins á Íslandi.
40 ára
Íris Björg Birgisdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík en búsett í Garðabæ.
Íris Björg er með B.Sc. í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og vinnur sem verkefnastjóri á fjáröflunar- og kynningarsviði Rauða krossins á Íslandi.
Maki: Gunnþór Steinar Jónsson, fæddur 1978, svæðisstjóri þjónustu hjá Marel.
Börn: Birgir Bragi, fæddur 2004, og Bjarki Steinar, fæddur 2007
Foreldrar: Birgir Bjarnason, fæddur 1953, fjármálastjóri HK, og Guðbjörg Sigmundsdóttir, fædd 1953, listakona.