Þorkell Sigurlaugsson
Þorkell Sigurlaugsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Þorkel Sigurlaugsson: "Frumvarp um frumkvöðlasjóðinn Kríu með 2,5 milljarða króna ráðstöfunarfé er gott dæmi um áherslu stjórnvalda á sviði nýsköpunar."

Hagkerfið hér á landi er mjög auðlindadrifið. Frá miðri síðustu öld hafa aðallega verið tveir megindrifkraftar hagvaxtar, þ.e. auðlindir sjávar og orka fallvatna og jarðvarma. Það var ekki fyrr en eftir bankahrun að ný auðlind bættist við af fullum þunga, náttúrufegurð Íslands og menning.

Þessar auðlindir eiga nú undir högg að sækja á sama tíma, tekjuöflun dregst saman og jafnvel bregst alveg eins og ferðaþjónusta á þessu ári. Þó að þetta komi vonandi sem mest til baka, þá er nýsköpun í þessum greinum og ekki síður nýsköpun með nýrri atvinnustarfsemi mikilvægur þáttur í endurreisn sem fram undan er.

Sjálfbærni er leiðarljósið

Ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á nýsköpun í atvinnulífinu í öllum greinum. Útflutnings- og markaðsráð og Íslandsstofa, sem er samstarfsvettvangur stjórnvalda og atvinnulífs, hafa mótað stefnu í útflutningsáherslum þar sem sjálfbærni er leiðarljósið. Þessar áherslur snúa að sex þáttum.

• Orka og grænar lausnir.

• Hugvit, nýsköpun og tækni.

• Listir og skapandi greinar.

• Ferðaþjónusta.

• Sjávarútvegur.

• Sérhæfð matvæli og náttúruafurðir

Áhersla er á hagvöxt og verðmætasköpun, sem byggist á auknum útflutningstekjum, þar sem nýsköpun og sjálfbærni skiptir höfuðmáli. Nýsköpun getur snúist um markaðsstarf, að byggja upp sterk vörumerki, gæði afurða, framleiðni í framleiðslu, að nýta auðlindir með arðbærri hætti og bæta menntun, svo nokkur dæmi séu nefnd.

Hugvitið er sjálfbærast allra auðlinda

Það þarf ekki að spara hugvit og það minnkar ekki heldur eykst við notkun. Hugvit býr til nýja þekkingu, stuðlar að nýsköpun og laðar til landsins innflytjendur, sem hafa áhuga á að setjast að og starfa í menningar- og velferðarsamfélagi.

Þegar ráðist er í nýsköpun, sem tengist hugviti og skapandi greinum, þá verða áföllin lítil í samanburði við atvinnuleysi nú á tímum COVID-19-kreppu. Fyrir Íslendinga er þetta sérlega mikilvægt vegna þess hve vægi auðlindanotkunar er mikið í sjávarútvegi, orkunýtingu og ferðaþjónustu.

Auka þarf fjölbreytni og færa áherslur í menntun, atvinnuþróun og nýsköpun í greinar sem tengjast fjórðu iðnbyltingunni. Fjórða iðnbyltingin tengist sjálfvirknivæðingu á fjölmörgum sviðum, gervigreind, nýjum öflugum upplýsingakerfum, líftækni, breytingum í fjölmiðlun og viðskiptaháttum. Vægi efnislegra eigna minnkar á sama tíma óefnislegar eignar verða verðmætari. Óefnislegar eignir er hægt að nýta án þess að verðmæti rýrni við notkun og hægt að nýta þær á mörgum stöðum á sama tíma. Gott dæmi um þetta eru þau verðmæti sem Facebook, Google og Amazon hafa skapað eigendum sínum og endalaus dæmi um slíkt um allan heim. Við fjórðu iðnbyltinguna verða til ný atvinnutækifæri, sem koma í stað fækkunar starfa í hefðbundnum atvinnugreinum náttúruauðlinda.

Fjölmörg tækifæri á sviði heilbrigðis- og líftæknimála

Þekking Íslendinga hefur verið mikil í tengslum við heilbrigðismál, rekstur og rannsóknir Landspítala, ýmissa heilbrigðisstofnana og sjálfstætt starfandi fyrirtækja á þessu sviði. Síðast en ekki síst má nefna fyrirtæki á sviði erfðatækni og lyfjaþróunar.

Litið hefur verið á heilbrigðis- og velferðarmál sem byrði og kostnað á fjárlögum. Framundan virðist vera nánast óstöðvandi þörf fyrir aukin útgjöld, en aukin tækniþekking m.a. þróun stafrænna miðla og fjórða iðnbyltingin getur lækkað kostnað og aukið hagkvæmni í þessum geira.

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, hefur bent á nokkur dæmi um ný viðhorf sem hafa komið upp í tengslum við COVID-19 baráttuna. Sett var upp sérstök göngudeildarþjónusta og í raun var um fjargöngudeildarþjónustu að ræða. Einnig hefur heimsóknabann aðstandenda kallað á möguleika á fjarfundabúnaði fyrir inniliggjandi sjúklinga og fyrir eldri borgara á hjúkrunarheimilum.

Heilbrigðismál snúast ekki eingöngu um velferð og heilbrigði heldur einnig tækifæri til verðmætasköpunar og hagvaxtar.

Fjárfestingarsjóðir og frumkvöðlafyrirtæki

Eitt af „tækjum“ fjármálamarkaðarins, sem styðja við nýsköpun, eru svokallaðir áhættufjármagnssjóðir (e. venture capital funds eða VC sjóðir). Þetta hafa verið kallaðir „vísissjóðir“ og dæmi um slíkan sjóð er vísissjóðurinn Crowberry Capital sem er rekinn af fyrirtæki í eigu þeirra Heklu Arnardóttur, Helgu Valfells og Jennýjar Ruthar Hrafnsdóttur. Crowberry I er 4 milljarða króna íslenskur vísissjóður stofnaður árið 2017 með 10 ára líftíma. Hann er um 80% í eigu lífeyrissjóða.

Sjóðurinn hefur fjárfest í 12 tæknifyrirtækjum. Þar af eru 25% á sviði heilbrigðistækni, 25% í leikjaiðnaði og 17% í fjártækni. Annað er á hefðbundnari hugbúnaðar- og tæknilausnum. Það er athyglisvert í þeim heimsfaraldri, sem nú herjar, þá eru þessi fyrirtæki ekki að verða fyrir neikvæðum áhrifum eða fækka starfsfólki, enda stafrænar lausnir í heilbrigðistækni aldrei verið eins nauðsynlegar og nú. Þetta eru dæmigerðar fjárfestingar fjórðu iðnbyltingarinnar.

Nefna má nokkur fyrirtæki, sem hafa sprottið upp á undanförnum árum, og tengjast rannsóknum og þróun á sviði heilbrigðis- og líftækni. Kara Connect, Stjörnu Oddi, 3Z, Kerecis, Nox Medica, Saga Natura, Oculis, Mentis Cura, Zymetech, Sidekickhealth og Neckcare. Stærri fyrirtæki eins og Össur, Alvogen, Alvotech og Decode þekkja allir.

Krían er komin og veiran á útleið

Mikill stuðningur Þórdísar Kolbrúnar, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar, og ríkisstjórnarinnar við nýsköpun og frumkvöðlastarf hefur varðað leiðina til framtíðar. Frumvarp um frumkvöðlasjóðinn Kríu með 2,5 milljarða króna ráðstöfunarfé er dæmi um aukna áherslu stjórnvalda á þessu sviði.

Krían er sá fugl sem ferðast lengst frá landinu þegar hún fer í burtu, en kemur alltaf til baka. Hún er eldsnögg og á sífelldu iði og amstri og nafngiftin hæfir því öflugum frumkvöðlasjóði. Kría eflir enn frekar vísisfjárfestingar og byggir grunn að öflugra umhverfi nýsköpunar hér á Íslandi.

Krían er velkomin til landsins og hefur nokkur undanfarin ár komið um þetta leyti í lok apríl og veiran er vonandi á útleið og er ekki velkomin til baka. Það er full ástæða til að horfa með bjartsýni til sjálfbærrar nýsköpunar á Íslandi að lokinni þeirri alheimskreppu sem kennd verður við COVID-19.

Stöndum saman að traustu sjálfbæru atvinnulífi á Íslandi. Við erum öll saman í þessu.

Höfundur er viðskiptafræðingur og formaður velferðarnefndar Sjálfstæðisflokksins.

Höf.: Þorkel Sigurlaugsson