Chanel-taskan var keypt notuð.
Chanel-taskan var keypt notuð.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ragnheiður Helga Blöndal förðunarfræðingur er óhrædd við að blanda saman fínum og hversdagslegum fötum. Hún starfar í Spúútnik og er sjálf hrifin af því að ganga í gömlum fötum.

Ragnheiður Helga Blöndal förðunarfræðingur er óhrædd við að blanda saman fínum og hversdagslegum fötum. Hún starfar í Spúútnik og er sjálf hrifin af því að ganga í gömlum fötum. Hún kaupir föt og fylgihluti með sál bæði hér heima og erlendis og segir þolinmæði skipta máli þegar kemur að því að kaupa notað. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is

Fatastíllinn minn er blanda af „street style“ og „fancy vibes“. Ég heillast mikið af klassískum og sterkum formum; vinnuklæðnaður hittir Dynasty. Ævisaga mín mun líklega heita Blazer-jakkar, kokteilkjólar og 501,“ segir Ragnheiður Helga þegar hún er beðin að lýsa fatastílnum sínum.

Yfirhafnir eru líka í uppáhaldi hjá Ragnheiði Helgu og þá sérstaklega hvít kápa sem ömmusystir hennar gaf henni.

„Hvíta ljónakápan mín með röndótta feldinum er án efa uppáhaldsflíkin mín og verður líklegast alltaf. Ég fékk hana í jólagjöf fyrir tveimur árum frá ömmusystur minni og hún er núna mikilvægasta flíkin í skápnum mínum. Hún er líka „vintage“, sem gerir hana enn þá sérstakari. Svo er það svarta „basic“ kápan mín. Ég var búin að leita að hinni fullkomnu kápu mjög lengi og rakst á hana fyrir tilviljun í COS. Hún er allt sem ég vil í kápu; bein í sniðinu, í smá yfirstærð en ekki þannig að hún gleypi mig, síddin er fullkomin og passar við allt sem ég á. Ég var líka leið yfir strák daginn sem ég keypti hana, kápan lagaði það sár hratt og örugglega.“

Ragnheiður Helga á gott safn af töskum.

„Ég hef alltaf verið hrifin af töskum, þær hafa alltaf verið áhugamál hjá mér. Ég til dæmis elska svörtu stóru leðurtöskuna mína með gulllituðu smáatriðunum. Hún er vintage og minnir mig mikið á Hermès Birkin-töskur, sem mig dreymdi um að eignast mjög lengi.

Hringi er ég alltaf með, þeir þurfa helst að vera það stórir að þeir séu fyrir mér, þannig líður mér best. Svo get ég ekki sleppt að minnast á hælaskó. Ég er hrifnust af svörtum támjóum ökklastígvélum, þannig að þegar ég fékk mér fjólubláu skóna var það eins konar persónuleikabrestur því ég er ekki mikið í litum en þeir passa bara mjög vel inn í skápinn minn.“

Rétt eins og titillinn á óskrifaðri ævisögu Ragnheiðar Helgu gefur til kynna segist hún aldrei eiga nóg af gallabuxnatýpunni 501 frá Levi's. Það er einnig alltaf pláss fyrir stuttermaboli í fataskápnum. „Ég á reyndar alveg nóg af þessu en þetta er tvennt sem ég get alltaf verið í og nota mjög mikið.“

Er eitthvað á óskalistanum fyrir vorið?

„Óskalistinn minn er stuttur þetta vorið vegna þess að mig vantar ekki neitt, en ég er að leita að hvítri skyrtu sem ég mun kaupa mér um leið og ég finn hana í rétta sniðinu og einhverja flotta strigaskó.“

Áttu þér uppáhaldsbúð?

„Spúútnik er án efa uppáhaldsbúðin mín. Ég er reyndar ekki alveg hlutlaus þar sem ég er búin að vinna þar mjög lengi. Spúútnik er eiginlega búin að ala mig upp; allt sem ég kann lærði ég í Spúútnik, hvort sem er um föt eða lífið. Ég er líka mjög hrifin af Húrra Reykjavík og Rauðakrossbúðirnar eru í mjög miklu uppáhaldi.“

Erlendis heilla búðir og markaðir sem selja notaðar vörur Ragnheiði Helgu og mælir hún sérstaklega með London, Kaupmannahöfn og Berlín. Að skoða notuð föt erlendis er stór hluti af ferðalögum Ragnheiðar Helgu en hún segir ekki nauðsynlegt að kaupa alltaf eitthvað. Það sé líka upplifun að skoða bara. „Mér finnst ég kynnast umhverfinu vel af fötunum og hlutum sem ég sé,“ segir Ragnheiður Helga um búða- og markaðsrölt sitt.

Áttu þér uppáhaldshönnuð eða -tískufyrirmyndir?

„Prada og Balenciaga eru í miklu uppáhaldi hjá mér, svo margar yfirhafnir hjá þeim sem mér finnst ótrúlega flottar. Balenciaga-sýningin fyrir haustlínuna árið 2020 er stór hluti ástæðu þess að merkið er í miklu uppáhaldi hjá mér, mér fannst hún geggjuð. Helstu tískufyrirmyndir mínar eru Luka Sabbat og ASAP Rocky. Líka frú Kim Kardashian West eftir að hún byrjaði með Kanye West og líka smá þegar hún var aðstoðarmanneskja Paris Hilton.“

Ragnheiður Helga sækir líka innblástur í gömul tískutímarit og á gott safn af gömlum tímaritum sem kemur frá allri fjölskyldunni. Móðir hennar var dugleg að safna blöðunum sem og ömmusystir hennar. Tískan gengur í hringi og finnst henni til dæmis áhugavert að fletta blöðunum og sjá hvernig tíska sem er að koma aftur heit inn var áður.

Hefur samkomubann haft áhrif á klæðnað þinn?

„Svartir latexhanskar hafa bæst við fötin mín, þeir koma bara ansi vel út við gullhringana mína. Ég hef varla farið úr gráa jogginggallanum mínum úr Spúútnik, þægilegasta sem ég á. Annars er ég kannski aðeins minna í hælum og meira með hárið uppi svo ég sé ekki að snerta á mér andlitið.“

Ragnheiður Helga er mjög spennt að klæða sig upp aftur þegar samkomubanni lýkur.

„Ég er mjög spennt að nota hvítu hælaskóna mína sem ég keypti rétt fyrir samkomubann. Svo saumaði vinkona mín síðermabol fyrir mig sem ég er mjög spennt að frumsýna. Annars hlakka ég mest til að vera gella aftur yfirhöfuð,“ segir Ragnheiður Helga að lokum.