Andar út Jónsi á ljósmynd sem fylgir nýútgefna laginu, „Exhale“, úr hlaði.
Andar út Jónsi á ljósmynd sem fylgir nýútgefna laginu, „Exhale“, úr hlaði.
Tónlistarmaðurinn Jónsi, Jón Þór Birgisson, söngvari Sigur Rósar, hefur sent frá sér fyrsta sólólagið í áratug. Nefnist það „Exhale“ og stjórnaði Jónsi upptökum ásamt A.G. Cook.

Tónlistarmaðurinn Jónsi, Jón Þór Birgisson, söngvari Sigur Rósar, hefur sent frá sér fyrsta sólólagið í áratug. Nefnist það „Exhale“ og stjórnaði Jónsi upptökum ásamt A.G. Cook. Samhliða útgáfu lagsins frumsýndi Jónsi tónlistarmyndband við lagið sem hann leikstýrði sjálfur ásamt Giovanni Ribisi.

Fyrsta og eina sólóplata Jónsa, Go , kom á markað fyrir tíu árum og hlaut mikla athygli. Hreppti hún meðal annars annars verðlaunin Nordic Music Prize.

„Exhale“ hefst mjúklega, með rödd Jónsa og lágstemmdum píanóleik. Hljóðgervlar bætast við píanóleikinn og lagið stigmagnast undir söng Jónsa sem endurtekur „just let it go now/ it isn't your fault“ sem má túlka sem einhvers konar stefnuyfirlýsingu eða leiðarstef fyrir óútreiknanlegt lífið á 21. öldinni – og jafnframt ástandið í samtímanum.

Í tónlistarmyndbandinu birtist dansari undan svörtum plastdúk. Eftir því sem lagið stigmagnast og fleiri hljóðfæri og taktur bætast við spegla hreyfingar dansarans tónlistina á meðan efnisbútar úr dúknum þyrlast upp og svífa í loftinu eins og lauf í vindi.

Jónsi hefur frá upphafi ferils síns skapað sér nafn með áhrifaríkum tónsmíðum sem, eins og segir í tilkynningu, „kafa djúpt ofan í mannlega vitund og kanna samband okkar við náttúruna. Með Sigur Rós tókst honum að umbreyta harðneskjulegu landslagi Íslands í tónlist sem er bæði tær, lífræn og ósnortin af nútímanum, þó svo að hún lifi þar góðu lífi.“

Bent er á að hljóðheimur Cooks geti „verið vélrænn, stundum harkalegur og afar tilraunakenndur“ en afraksturinn sé fallegur og dáleiðandi rödd Jónsa ferðist á nýjar og ókunnugar slóðir.

Fyrr á þessu ári hélt Jónsi sína fyrstu einkasýningu í Los Angeles-útibúi hins virta myndlistargallerís Tanya Bonakdar Gallery. Í innsetningum og skúlptúrum vann Jónsi þar meðal annars með áhrif hljóðs á fleiri skynfæri en eyrun.