Sumar Þórshafnarbúar gátu svarað í sumartunglið á fyrsta degi sumars.
Sumar Þórshafnarbúar gátu svarað í sumartunglið á fyrsta degi sumars. — Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Úr bæjarlífinu Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Það styttist í sauðburð og nú þegar eru litlir vorboðar mættir í stöku fjárhús þótt sauðburður hefjist ekki fyrir alvöru fyrr en kringum fyrstu vikuna í maí.

Úr bæjarlífinu

Líney Sigurðardóttir

Þórshöfn

Það styttist í sauðburð og nú þegar eru litlir vorboðar mættir í stöku fjárhús þótt sauðburður hefjist ekki fyrir alvöru fyrr en kringum fyrstu vikuna í maí. Lítið sem ekkert kal er í túnum á þeim jörðum sem næst liggja sjó en þegar lengra er komið inn í landið fjær sjó er ástand túna ekki jafn gott.

Mikill snjór er ennþá inni á heiðum þótt autt sé víðast hvar við ströndina og auð tún freista því heiðagæsarinnar sem aldrei fyrr.

„Gæsirnar voru hér á túnunum í morgun í þúsundatali, ágangurinn frá þeim er með allra mesta móti núna þegar heiðarnar eru á kafi í snjó,“ sagði bóndi í Langanesbyggð, óhress með þessa ránsflokka á túnunum og segir hann heiðagæsina hina verstu plágu en fleiri bændur hafa sömu sögu að segja.

Grásleppuvertíð stendur sem hæst og hefur veiði verið góð undanfarið og flestir bátar komnir með um 30 tonn hver en aðeins er að draga úr veiði þessa dagana. Mjög góð veiði hefur verið á Bakkafirði. Litlanesið, bátur Ísfélagsins, hefur fiskað ágætlega þorsk og ýsu og aflinn er unninn í Ísfélaginu hér. Strandveiði hefst um mánaðamótin en jafnan hafa nokkrir bátar stundað þær veiðar hér.

Sumardagurinn fyrsti stóð vel undir nafni á Þórshöfn þetta árið en hver góðviðrisdagur er vel þeginn eftir þungan vetur. Sumartunglið er nýkviknað en svo nefnist fyrsta nýja tungl eftir sumardaginn fyrsta. Gömul þjóðtrú er tengd sumartunglinu og skal hún rifjuð upp.

Gömul amma á Þórshöfn hélt mikið upp á sumardaginn fyrsta og minnti barnabörn sín alltaf á að fylgjast vel með hverju þeim yrði svarað í sumartunglið, og sagði:

„Þegar þú sérð fyrsta sumartunglið þá verður þú að þegja og bíða eftir að einhver tali til þín. Það fyrsta sem við þig verður sagt mun þá gefa vísbendingu um hvernig ganga muni hjá þér í sumar. Þetta heitir að svara í sumartunglið. Þú mátt alls ekki tala neitt sjálf áður en einhver annar yrðir á þig eftir að þú sérð tunglið því þá er spásögnin ónýt.“

Að svara í sumartunglið

Eftir fornri þjóðtrú, það veit eg,

þögul skaltu verða og hátíðleg

þegar fyrsta sinni sumartunglið

sérðu reika bláan himinveg.

Ekki máttu rjúfa þessa þögn

það er brot við lífsins duldu mögn

fyrr en einhver til þín talað hefur,

tal hans verður þér að spádómssögn.

Hversu stutt og einfalt sem það er

örlög þín í dularskauti ber,

þannig er að svara í sumartunglið,

segja grunlaus hvað á eftir fer.

Komdu, komdu beina braut til mín,

björt og fögur þegar tunglið skín

því að alltaf eru á vörum mínum

orð sem verið gætu forspá þín.

(Guðmundur Ingi Kristjánsson)