Darmstadt Guðlaugur Victor Pálsson hefur átt mjög gott tímabil.
Darmstadt Guðlaugur Victor Pálsson hefur átt mjög gott tímabil. — Morgunblaðið/Eggert
Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson hefur verið besti leikmaður þýska B-deildarliðsins Darmstadt á yfirstandandi keppnistímabili, að mati knattspyrnutímaritsins Kicker.
Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson hefur verið besti leikmaður þýska B-deildarliðsins Darmstadt á yfirstandandi keppnistímabili, að mati knattspyrnutímaritsins Kicker. Í gær tók það út einn leikmann í hverju liði deildarinnar og Victor var sagður burðarásinn á miðju Darmstadt, yfirvegaður, með mikla hlaupagetu og öflugur í návígjum, auk þess sem hann tæki góðan þátt í sóknarleiknum. Darmstadt er í sjötta sæti B-deildarinnar þegar níu umferðum er ólokið.