Myndin hennar Lindu af Esjunni fer eins og eldur í sinu um heimsbyggðina en 121.000 manns hafa lækað hana. Eina sem Linda skrifaði við myndina var: From my kitchen window, <strong>Reykjavík</strong>, Iceland. Linda segir fjölmarga hafa sagst ætla að koma til Íslands þegar heimsbyggðin megi ferðast á ný og grínast hún með að bjarga efnahag landsins.
Myndin hennar Lindu af Esjunni fer eins og eldur í sinu um heimsbyggðina en 121.000 manns hafa lækað hana. Eina sem Linda skrifaði við myndina var: From my kitchen window, Reykjavík, Iceland. Linda segir fjölmarga hafa sagst ætla að koma til Íslands þegar heimsbyggðin megi ferðast á ný og grínast hún með að bjarga efnahag landsins.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Á Facebook hefur verið stofnaður hópur sem nefnist View from my window og eru meðlimir orðnir 1,6 milljónir. Fólk um allan heim tekur mynd út um gluggann sinn og birtir á síðunni og sýnir þannig öðrum sinn veruleika nú á tímum kórónuveirunnar.

Á Facebook hefur verið stofnaður hópur sem nefnist View from my window og eru meðlimir orðnir 1,6 milljónir. Fólk um allan heim tekur mynd út um gluggann sinn og birtir á síðunni og sýnir þannig öðrum sinn veruleika nú á tímum kórónuveirunnar. Íslensk kona, Linda Sif Þorláksdóttir, á þar vinsælustu myndina sem hún tók í bríaríi út um eldhúsgluggann sinn. 121 þúsund manns hafa lækað myndina og yfir átta þúsund skrifað við hana ummæli. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is

Íslensk ljósmynd í facebookhópnum View from my window er komin með 121 þúsund læk og 8.300 ummæli og yfir þúsund deilingar, hvorki meira né minna, og ekki er annað að sjá en myndin sé vinsælasta mynd hópsins. Eigandi myndarinnar er Linda Sif Þorláksdóttir, leiklistarkennari í Hörðuvallaskóla, en hún póstaði myndinni hinn 15. apríl. Hún átti engan veginn von á því að útsýnið hennar myndi vekja svona mikla lukku úti í hinum stóra heimi.

Er að redda efnahagnum

Linda segist hafa frétt af þessum hópi í gegnum vinkonu sína og ákveðið að gerast meðlimur.

„Mér fannst þetta skemmtilegt konsept, að geta skoðað útsýni fólks um víða veröld nú á þessum tímum. Í algjöru bríaríi fann ég eina mynd af útsýninu mínu og henti henni inn,“ segir Linda.

Viðbrögðin áttu heldur betur eftir að koma á óvart.

„Ég var svo ekkert að spá í þetta meira en daginn eftir fæ ég skilaboð frá þessari vinkonu þar sem hún segir mér að ég sé að sprengja netið. Ég spurði hana bara hvað hún væri að tala um. Hún spurði hvort ég væri ekki búin að sjá lækin sem komin voru á myndina mína en ég hafði þá ekkert farið aftur á síðuna. Ég var auðvitað yfir mig hissa, bæði á fjölda læka og svo á öllum ummælunum. Það sögðust margir ætla að koma til Íslands þegar þetta covid-ástand væri búið. Fólk var algjörlega agndofa yfir myndinni, sem er dálítið fyndið fyrir okkur Íslendinga því við erum svo vön þessu útsýni; þetta er bara Esjan okkar sem við sjáum alltaf. Við verðum frekar agndofa yfir myndum frá Maldíveyjum eða slíkum framandi stöðum. En mjög mörgum finnst þetta geggjað – og þetta er bara útsýnið út um eldhúsgluggann minn í Heiðargerðinu!“ segir Linda og skellihlær.

„Ég er auðvitað ekki búin að lesa öll kommentin en kíkti yfir þau þarna fyrsta daginn. Og ekki svarað þeim heldur! Fólk skrifar að því finnist þetta útsýni svo stórkostlega fallegt og svo mikil fríðindi að hafa svona út um gluggann hjá sér. Fólk sér í þessu frelsi og víðáttu. Svo hafa margir sagt að Ísland sé fyrsta landið sem er á þeirra „bucket-lista“ þegar loks má fara að ferðast aftur. Þau eru fjölmörg svoleiðis skilaboð; ég er að redda efnahagnum!“ segir hún og hlær.

Sprengdi alla skala

Blaðamaður skoðaði fjölmargar myndir í hópnum og ekki var annað að sjá en mynd Lindu tróndi á toppnum hvað vinsældir varðar. Næsta sem komst nálægt hennar mynd var ein sem hafði fengið 80 þúsund læk.

„Já, ég veit, ég er með flest læk af öllum. Ég hef rennt yfir þetta og finn enga aðra mynd með eins mörg læk. Ég sprengdi netið með Esjumyndinni minni. Svo er búið að deila henni rúmlega þúsund sinnum! Það var líka haft samband við mig frá Brasilíu og beðið um leyfi til að birta myndina mína þar í blaði.“