Collab Hrönn Margrét er ánægð með drykkinn.
Collab Hrönn Margrét er ánægð með drykkinn. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Íslenski kollagendrykkurinn COLLAB frá Feel Iceland og Ölgerðinni er nú fáanlegur í fjórum bragðtegundum. Ný bragðtegund kom í verslanir í síðustu viku.

Íslenski kollagendrykkurinn COLLAB frá Feel Iceland og Ölgerðinni er nú fáanlegur í fjórum bragðtegundum. Ný bragðtegund kom í verslanir í síðustu viku. „Við hófum sölu á nýrri bragðtegund, ástaraldin- og límónubragði, fyrir helgi og fyrstu viðtökur lofa mjög góðu. Það er ár síðan COLLAB kom fyrst á markað og þá í tveimur bragðtegundum. Vöxturinn hefur verið hraður og nú erum við komin með fjórar bragðtegundir á markað,“ segir í fréttatilkynningu, haft eftir Hrönn Margréti Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra og annars stofnenda Feel Iceland.

Alþjóðleg verðlaun

COLLAB er afrakstur tveggja ára þróunarstarfs Feel Iceland, sem er frumkvöðlafyrirtæki, og Ölgerðarinnar en drykkurinn inniheldur Feel Iceland-kollagen unnið úr íslensku fiskroði sem nýlega vann til alþjóðlegra verðlauna, ásamt koffíni og vítamínum.

Feel Iceland-kollagenið vann til alþjóðlegra verðlauna í síðasta mánuði. Þar var Amino Marine Collagen-duftið valið besta kollagen-fæðubótarefnið hjá The Beauty Shortlist . „Við erum mjög stolt af þessum verðlaunum en það eru fengnir sérhæfðir dómarar frá London, New York og Sydney sem nota vörurnar í fimm mánuði og velja síðan vinningshafa út frá þeirra reynslu. Við finnum fyrir miklum áhuga bæði á COLLAB-drykknum og Feel Iceland-fæðubótarvörunum erlendis og erum nú að skoða frekari vöxt,“ segir Hrönn Margrét og að síðustu:

Árangursríkt samstarf

„Viðtökur á Collab hafa farið fram úr okkar björtustu vonum og mér finnst drykkurinn gott dæmi um það hvað samstarf frumkvöðla við stærri fyrirtæki getur verið árangursríkt. Það var mikil framsýni hjá Ölgerðinni að veðja á Feel Iceland og nota afurðir úr íslenskum fiski í drykk. Þegar við kynntum þessa hugmynd fyrir þeim virkaði hún frekar langsótt en við erum mjög þakklát fyrir að þau slógu til. Nú erum við með í höndunum einstakan íslenskan drykk og erum mjög stolt af því.“ sbs@mbl.is