[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
viðtal Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Leikarinn Eysteinn Sigurðarson fer með hlutverk í fjórðu þáttaröð The Last Kingdom sem verður aðgengileg 26. apríl á Netflix.

viðtal

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Leikarinn Eysteinn Sigurðarson fer með hlutverk í fjórðu þáttaröð The Last Kingdom sem verður aðgengileg 26. apríl á Netflix.

Eysteinn býr nú í London en hann nam leiklist í Listaháskóla Íslands, útskrifaðist þaðan fyrir fimm árum og starfaði í Borgarleikhúsinu um skeið, lék þar m.a. í söngleiknum Mamma Mia! og leikritinu Hver er hræddur við Virginiu Woolf? og vakti auk þess athygli fyrir leik sinn í páskamynd RÚV fyrir tveimur árum, Mannasiðum.

Á margt sameiginlegt með Gunnari á Hlíðarenda

„Þættirnir eru sögulegur skáldskapur sem byggist á bókaflokki eftir Bernard Cornwell. Sögusviðið er Bretlandseyjar á tíundu öld, þegar kristnir Saxar börðust gegn innrásum heiðinna víkinga,“ segir Eysteinn um efni þáttanna og að söguhetja þeirra, Uthred nokkur Ragnarsson, hafi fæðst sem Saxi en alist upp með víkingum og sé því milli tveggja heima. „Hann á margt sameiginlegt með Gunnari okkar á Hlíðarenda; glæsileg bardagahetja sem lætur stolt hjartað ráða för. Ég leik ungan og klókan víkingaforingja sem heitir Sigtryggr Ívarsson. Lesendur bókanna vita að leiðir þeirra Uthreds skarast á eftirminnilegan hátt,“ segir Eysteinn.

Gaman að leika vonda

En hvernig fékk hann þetta hlutverk?

„Eins og vaninn er í London fór þetta allt fram í gegnum umboðsmennina mína. Ég fékk senur sendar, tók upp prufu heima hjá mér og var svo fenginn á skype-fund með leikstjóra og framleiðanda. Við spjölluðum aðeins um hlutverkið og í kjölfarið tók ég upp nokkrar senur í viðbót. Stuttu seinna var mér boðið hlutverkið,“ svarar Eysteinn.

– Hvernig er þetta hlutverk samanborið við önnur sem þú hefur tekið að þér?

„Ég hef leikið „vonda kalla“ áður og finnst það æðislega gaman. Þessi er með svöðusár á hjartanu og það er nokkuð sem hann á sameiginlegt með mörgum persónum sem ég hef leikið í gegnum tíðina.

Það var skemmtilegt stökk að fara úr því að leika 18 ára menntaskólastrák í kvikmyndinni Mannasiðir í að leika ógnvekjandi víkingaforingjann Sigtrygg. Um leið og maður sér sig í spegli með síða hárkollu, ljótt ör yfir hálft andlitið og íklæddan leðurbrynju, þá vaknar manns innri víkingur.“

Miðaldaþorp og kvikmyndaver reist við Búdapest

Tökur á þáttaröðinni fóru fram í Búdapest í Ungverjalandi.

„Heilu miðaldaþorpunum og kvikmyndaverunum hefur verið slegið upp í sveitinni kringum borgina og fer þar fram mikil kvikmyndaframleiðsla,“ segir Eysteinn. „Ég var þarna í sex vikur yfir hásumar 2019, stundum var maður að skylmast í fullum herklæðum í þrjátíu stiga hita.

Búdapest er töfrandi borg og mér fannst gaman að skoða mig um þar í göngutúrum á kvöldin með kærustunni minni sem kom og dvaldi hjá mér í lítilli íbúð meðan á þessu stóð.“

– Þetta eru netflix-þættir af dýrari sortinni, hvernig var aðbúnaður þarna og hvernig var farið með ykkur leikarana?

„Það var þvílíkt fagfólk í öllum stöðum. Ég fór spenntur í vinnuna á hverjum morgni og er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið að vinna með þessu fólki og sjá hvað þau voru öll eljusöm og klár en jafnframt innileg og hlý í viðmóti.

Fyrstu vinnudagarnir mínir fóru í búninga- og hárkollumátun og ég man hvað það var magnað að ganga inn í herbergi þar sem hátt í tuttugu manns voru komin saman til að mæla mig hátt og lágt. Þarna var meðal annars leðurhandverksfólk mætt til að sníða á mig stígvél og brynju, og stálsmiður til að sýna mér sverðin mín, annað úr stáli og hitt úr frauðplasti, fyrir áhættuatriðin. Þarna voru myndir af mér upp um alla veggi og ég fylltist þakklæti að vera ekki einn í því að skapa þessa persónu. Þvert á móti hafði ég heilan her af sprenglærðu fólki með mér, og þau voru búin að vera í hugmyndavinnu í margar vikur áður en ég hitti þau.“

Óx ásmegin með hverju skrefi

Eysteinn er spurður hvað hafi reynt mest á hann í þessu hlutverki.

„Bardagasenurnar voru erfiðastar. Þær kröfðust líkamlegs úthalds og algjörrar samstillingar milli áhættuleikara og tökuliðs. Ekkert mátti bregða út af og við tókum töku eftir töku eftir töku. Mig langaði helst að leggjast í grasið og gráta í hnipri en það hefði ekki samræmst persónuleika karaktersins míns, svo ég beit á jaxlinn og lét mig hafa það að halda áfram. Ég fór þetta á adrenalíninu og með stuðningi mótleikara minna,“ svarar hann.

– Stendur eitthvert minnisstætt atvik á tökutímabilinu upp úr?

„Fyrsta tökudaginn minn, sem fór reyndar fram að nóttu til, átti ég að leika senu þar sem Sigtryggr fer fyrir risaher stæðilegra og ógnvekjandi víkinga en tökurnar fóru fram á stóru túni í miðjum skógi í niðamyrkri. Ég var eðlilega pínu stressaður að mæta á svona stórt kvikmyndasett í fyrsta sinn, þekkti fáa og langaði að standa mig vel.

Herinn minn samanstóð af tæplega fimmtíu ungverskum áhættuleikurum, algjörum nöglum sem hafa verið í þessum bransa í áratugi sumir hverjir. Þarna voru þeir að sjá mig í fyrsta sinn, nýja sterka vonda karlinn í þáttunum, foringjann þeirra. Þeir stóðu tilbúnir í einni langri línu, sumir með kyndla, aðrir með boga, sverð og skildi við hönd.

Til að koma mér í karakter gekk ég hægt framhjá hverjum og einum þeirra og starði hvössu augnaráði beint í augun á þeim. Ég fann að með hverju skrefi óx mér ásmegin og í augum manna minna fannst mér ég sjá óttablandna virðingu. Það sem ég ekki vissi á þeim tímapunkti var að ég hafði gleymt að fjarlægja af hausnum skærbleika hárnetið sem förðunar- og hárdeildin setur á leikarana milli sena svo að hárkollan losni ekki af þeim.

Það var mikið hlegið þegar einn bogamannanna, sem var enskumælandi, spurði mig kurteislega hvort þeir fengju allir svona hárnet fyrir bardagann,“ svarar Eysteinn.

Spennandi verkefni fram undan

– Þú býrð og starfar í London, hvað er næst á dagskrá hjá þér, eftir að samkomubanni lýkur?

„Það eru alls konar spennandi verkefni fram undan en núna einbeiti ég mér bara að því að tala við vini mína og fjölskyldu í símann, hringja kannski í ömmu mína í sveitinni og sjá hvernig hún hefur það, reyna að rækta það sem ég gaf mér ekki tíma til áður en samkomubannið skall á,“ segir Eysteinn.

Þáttaraðir The Last Kingdom hafa hlotið jákvæðar viðtökur gagnrýnenda og eru með meðaleinkunnina 78 af 100 á Metacritic og 91 af 100 mögulegum á Rotten Tomatoes sem tekur saman gagnrýni tuga gagnrýnenda, líkt og Metacritic.