Í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu er nú unnið að gerð lagafrumvarps til að bregðast við áhrifum kórónuveikifaraldursins á þá sem stunda strandveiðar. Frumvarpið verður kynnt nánar á næstu vikum, segir í frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu.

Strandveiðar mega hefjast 4. maí og verður fyrirkomulagið með sama sniði og í fyrra, með þeirri undantekningu að nú má róa á almennum frídögum. Strandveiðar eru leyfðar frá og með mánudegi til og með fimmtudegi í maí, júní, júlí og ágúst.

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segist finna fyrir miklum áhuga á strandveiðum í sumar. Hann gerir ráð fyrir að bátum fjölgi frá í fyrra en þá stunduðu 623 bátar strandveiðarnar. Aflabögð voru ágæt þrátt fyrir ógæftir og veiddust alls 10.107 tonn í um 16 þúsund sjóferðum, þar af 9.170 tonn af þorski. Aflaverðmæti nam um þremur milljörðum króna, að sögn Arnar. aij@mbl.is