Þurfa Bæjararnir Robert Lewandowski, David Alaba og Alphonso Davies að bera grímur á lokasprettinum í Þýskalandi?
Þurfa Bæjararnir Robert Lewandowski, David Alaba og Alphonso Davies að bera grímur á lokasprettinum í Þýskalandi? — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Leikmenn í Búndeslígunni verða með andlitsgrímur í leikjum fram á sumarið og í sóttkví á hótelum milli leikja, nái meintar hugmyndir yfirvalda í Þýskalandi fram að ganga. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

Stefnt er að því að hefja aftur keppni í efstu deild karla í knattspyrnu í Þýskalandi, Búndeslígunni, 9. maí næstkomandi en hlé var gert á mótinu í mars vegna kórónuveirufaraldursins. Fyrir liggur að engir áhorfendur verða á völlunum og leikmenn munu að líkindum þurfa að uppfylla ströng skilyrði til að draga úr hættu á að smit berist þeirra á milli.

Þýskaland hefur hingað til farið betur út úr heimsfaraldrinum en mörg önnur Evrópulönd en staðfest dauðsföll vegna veirunnar voru 5.321 á föstudaginn.

Ein af hugmyndunum sem hafa verið viðraðar í þessu sambandi er að leikmenn og dómarar verði látnir bera grímur til að hylja vit sín meðan á leikjum stendur en þýska tímaritið Spiegel hefur heimildir fyrir því að þýska vinnumálaráðuneytið muni setja þetta sem skilyrði fyrir því að keppni hefjist á ný.

Fram kemur í Spiegel að vinnumálaráðuneytið sé klárt með drög að reglum fyrir næstu vikur og í þeim sé rætt um andlitsgrímur sem fara ekki úr skorðum við spretti, kollspyrnur eða návígi.

„Fari grímurnar úr skorðum ber að stöðva leikinn þegar í stað,“ mun standa í drögunum. Vorið er komið í Evrópu, með tilheyrandi hlýindum, og hætt er við því að grímurnar verði býsna fljótt rakar enda vel tekið á því í Búndeslígunni sem víðar. Fyrir vikið mun vera lagt til að skipt sé um þær á fimmtán mínútna fresti, hið minnsta.

Óframkvæmanlegt

Talsmenn liðanna í Búndeslígunni gjalda varhug við þessum áformum og óhætt að segja að tvær grímur hafi runnið á suma vegna málsins.

„Menn geta mögulega tekið einn sprett með andlitsgrímu en ekki marga,“ segir Markus Kroesche, íþróttastjóri RB í Hlaupsigum. „Hugmyndin er áhugaverð en að mínu viti óframkvæmanleg.“

Dr. Karl-Heinrich Dittmar, heilbrigðisráðgjafi hjá Bayer Leverkusen, segir grímurnar óþarfar enda standi til að skima leikmenn reglulega ef deildin kemst aftur í gagnið. „Það er óþægilegt að vera með grímu og það hamlar öndun. Þetta myndi aldrei ganga í knattspyrnu. Ég held líka að þetta sé óþarfi enda er hætta á smiti gríðarlega lítil meðan við gerum prófin,“ segir hann.

Nái grímuáformin fram að ganga nagar gabonski miðherjinn Pierre-Emerick Aubameyang sig væntanlega í handarbakið en hann flutti sig frá Borussia Dortmund til Arsenal í Englandi fyrir rúmum tveimur árum. Aubameyang var frægur fyrir að bregða upp grímu þegar hann hafði skorað fyrir þýska liðið og hefði nú mögulega fengið tækifæri til að nota grímuna frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.

Í sóttkví á hótelum

Önnur hugmynd sem vinnumálaráðuneytið er sagt vinna út frá er að hafa hvert og eitt lið í sóttkví á hóteli þangað til keppni í Búndeslígunni verður lokið í sumar en rætt hefur verið um 30. júní í því sambandi. Þegar hefur komið fram að leikmenn eru mátulega spenntir fyrir því en níu umferðum er ólokið í Þýskalandi.

„Það myndi reynast mér mjög erfitt að verja næstu vikum á hóteli og mega ekki hitta fjölskyldu mína,“ hefur AFP-fréttaveitan eftir Danny da Costa, varnarmanni Eintracht Frankfurt.

Thomas Müller, sóknarmaður Þýskalandsmeistara Bayern München, hefur á hinn bóginn sagt að eina leiðin til að ljúka mótinu sé að hafa leikmennina í sóttkví. „Það blasir við að knattspyrnan myndi fella sig við nær alla skilmála til að geta spilað,“ sagði hann við tímaritið Sport Bild á dögunum.

Það er í höndum Angelu Merkel kanslara og ríkisstjórnar hennar að taka endanlega ákvörðun um það hvort og hvenær Búndeslígan fer í gang að nýju og hvaða skilmála beri þá að uppfylla. Að sögn AFP er talið að endanleg ákvörðun liggi fyrir í næstu viku.