Lára Björg Björnsdóttir
Lára Björg Björnsdóttir
Ríkisstjórnin samþykkti í gær að ráða Láru Björgu Björnsdóttur, fyrrverandi upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar, sem nýjan aðstoðarmann stjórnarinnar á sviði jafnréttismála og annarra samstarfsverkefna ráðuneyta.

Lára tekur við starfinu af Höllu Gunnarsdóttur sem hefur látið af störfum að eigin ósk. Lára mun meðal annars sinna heildarendurskoðun jafnréttislaga og undirbúningi alþjóðlegrar ráðstefnu samtaka sem berjast gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni sem ákveðið hefur verið að halda á Íslandi í maí 2021. Þá mun Lára einnig taka þátt í samstarfi fleiri ráðuneyta í útlendingamálum auk aðkomu að margháttuðum öðrum verkefnum í samstarfi ráðuneyta.