Holland Albert Guðmundsson leikur með AZ Alkmaar í Hollandi.
Holland Albert Guðmundsson leikur með AZ Alkmaar í Hollandi. — Ljósmynd/AZ Alkmaar
Keppni í hollenskum fótbolta er lokið á tímabilinu og verður ekkert lið krýnt meistari og ekkert lið fellur. Þá fer ekkert lið upp úr B-deildinni.

Keppni í hollenskum fótbolta er lokið á tímabilinu og verður ekkert lið krýnt meistari og ekkert lið fellur. Þá fer ekkert lið upp úr B-deildinni. Ajax og AZ Alkmaar voru jöfn í tveimur efstu sætum A-deildarinnar með 56 stig, en Albert Guðmundsson leikur með AZ Alkmaar. Þá leikur Elías Már Ómarsson með Excelsior í B-deildinni, en liðið var í sjöunda sæti.

Anna Björk Kristjánsdóttir er svo leikmaður PSV, sem var með sjö stiga forskot á Ajax á toppnum í efstu deild í kvennaflokki.