Ekki liggur vel á Mayu Hawke þessa dagana.
Ekki liggur vel á Mayu Hawke þessa dagana. — AFP
Angist Bandaríska leikkonan Maya Hawke vandar ekki foreldrum sínum og kynslóð þeirra kveðjurnar í viðtali við tímaritið Nylon en foreldrar hennar eru leikaranir Ethan Hawke og Uma Thurman.
Angist Bandaríska leikkonan Maya Hawke vandar ekki foreldrum sínum og kynslóð þeirra kveðjurnar í viðtali við tímaritið Nylon en foreldrar hennar eru leikaranir Ethan Hawke og Uma Thurman. „Við erum rétt tvítug og ættum að vera að skemmta okkur, neyta fíkniefna og djamma,“ segir Hawke. En nei, þökk sé X-kynslóðinni, þá megi enginn vera að þessu vegna þess að bjarga þurfi jörðinni. „Þið létuð okkur finna til tevatnsins,“ segir hin 21 árs gamla Hawke og bætir við að kvikmyndastjarnan sé í reynd dauð. „Trilljón leikarar eru með fylgjendur. Hversdagslegra verður það ekki.“