Klípa Buffett á hluthafafundi Berkshire fyrir ári. Hann spáir gjörbreyttu rekstrarumhverfi flugfélaga.
Klípa Buffett á hluthafafundi Berkshire fyrir ári. Hann spáir gjörbreyttu rekstrarumhverfi flugfélaga. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.isAldrei þessu vant steig Warren Buffett á svið fyrir framan galtóman sal á árlegum aðalfundi Berkshire Hathaway í Omaha um helgina.

Baksvið

Ásgeir Ingvarsson

ai@mbl.is

Aldrei þessu vant steig Warren Buffett á svið fyrir framan galtóman sal á árlegum aðalfundi Berkshire Hathaway í Omaha um helgina.

Í seinni tíð hefur aðalfundur félagsins orðið að risaviðburði og vörusýningu en þar var slegið nýtt met í fyrra þegar 40.000 manns frá öllum heimshornum flykktust til Omaha til að hlýða á stjórnendur þessa volduga eignarhaldsfélags. Vegna kórónuveirufaraldursins voru þátttakendurnir aðeins tveir að þessu sinni; forstjórinn Warren Buffett og Greg Abel, varaformaður stjórnar. Charlie Munger var fjarri góðu gamni, sem og Ajit Jain sem einnig er varaformaður stjórnar. Búist er við að Abel og Jain taki við stjórnartaumunum í félaginu þegar Buffett og Munger stíga til hliðar en þeir eru í dag 89 og 96 ára gamlir.

Bandarískir galdrar

Heyra mátti á svörum Buffetts á fundinum, sem sendur var út á fjármálavef Yahoo, að hann er bjartsýnn á að bandarískt efnahagslíf muni jafna sig á því tjóni sem veirufaraldurinn hefur valdið: „Við höfum tekist á við stærri áskoranir, og bandaríska kraftaverkið – bandarísku galdrarnir – hafa alltaf orðið ofan á.“

Þegar hann var beðinn að spá um framhaldið sagði Buffett, sem oft er kallaður véfréttin frá Omaha, að afleiðingar veirufaraldursins gætu þróast með margvíslegum hætti, en hægt væri að þrengja betur hringinn í dag en fyrir nokkrum vikum um mögulega framvindu mála. „Núna virðist ólíklegt að heimsbyggðin þurfi að glíma við að allt fari á allra versta veg, bæði á sviði efnahags- og heilbrigðismála,“ sagði hann og bætti við að hagkerfi Bandaríkjanna myndi jafna sig með tíð og tíma.

Buffett er m.a. þekktur fyrir að forðast að fjármagna fjárfestingar sínar með lántökum og notaði hann hluthafafundinn til að minna á hversu gagnlegt það væri í erfiðu árferði eins og nú að sitja ekki uppi með háar skuldir: „Það er alltaf óhætt að veðja á Bandaríkin, en það er ekki sama hvernig maður veðjar, því markaðurinn er til alls líklegur.“

Ekki nógu margir farþegar til að fylla flugvélarnar

Ljóst er að Buffett er alltént ekki reiðubúinn að veðja á bandarísku flugfélögin og var greint frá því fyrir aðalfundinn að Berkshire hefði selt alla þá hluti sem félagið átti í fjórum bandarískum flugfélögum. Það þóttu merkileg tíðindi árið 2016 þegar Berkshire eignaðist nokkuð stóra hluti í Delta, American, Southwest og United því áður hafði Buffett verið mjög andvígur fjárfestingum í flugfélögum og gengið svo langt að kalla þau „dauðagildru fyrir fjárfesta“. Greinir FT frá að í apríl hafi Berkshire selt frá sér um sex milljarða dala virði af hlutabréfum í félögum tengdum flugrekstri.

Af ummælum Buffetts á hluthafafundinum má ráða að hann hafi ekki mikla trú á að umskipti verði í fluggeiranum á komandi misserum. „Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér, en ég held að rekstrarumhverfi flugfélaga hafi tekið meiriháttar breytingum,“ sagði hann og kvaðst efast um að fólk yrði jafn duglegt að fljúga að tveimur eða þremur árum liðnum og það var á síðasta ári. „Og ef eftisrpurnin eftir flugi nær að verða 70 eða 80% af því sem hún var [fyrir faraldur] þá hverfa ekki þær flugvélar sem þegar eru í notkun. Það er of mörgum flugvélum til að dreifa.“

Erfið byrjun á árinu

Berkshire var rekið með miklu tapi á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Nam tapið nærri 50 milljörðum dala og hefur aldrei verið meira í sögu félagsins. Sagði Buffett að flest af þeim u.þ.b. 90 fyrirtækjum sem Berkshire á að hluta eða í heild glímdu við allt frá tiltölulega léttvægum yfir í mjög alvarleg vandamál vegna veirufaraldursins. Frammistaða Berkshire hefur valdið fjárfestum vonbrigðum og hefur hlutabréfaverð félagsins lækkað um 19% það sem af er þessu ári, en á sama tíma hefur S&P 500-vísitalan veikst um 12%.