Bækur Auk þeirra prentuðu eru nú í boði hljóðbækur og skjábækur.
Bækur Auk þeirra prentuðu eru nú í boði hljóðbækur og skjábækur. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rithöfundasamband Íslands (RSÍ) er að gera könnun á meðal félagsmanna sinna um reynslu höfunda af viðskiptum þeirra við sænsku hljóðbókaútgáfuna Storytel.

Rithöfundasamband Íslands (RSÍ) er að gera könnun á meðal félagsmanna sinna um reynslu höfunda af viðskiptum þeirra við sænsku hljóðbókaútgáfuna Storytel.

„Könnunin er nýfarin út og stendur í nokkra daga í viðbót,“ sagði Karl Ágúst Úlfsson, formaður RSÍ.

Spurður um almenna reynslu rithöfunda af Storytel kvaðst Karl Ágúst ekki geta sagt til um hana. „Þetta er svolítið flókið fyrirkomulag. Rithöfundar semja yfirleitt ekki beint við Storytel heldur fer það oft í gegnum útgefendur. Ég geri frekar ráð fyrir því að fólk komi misjafnlega vel út úr þessum viðskiptum, en þetta segi ég án ábyrgðar,“ sagði Karl Ágúst.

Í frétt Morgunblaðsins um gagnrýni Ingimars Jónssonar, forstjóra Pennans, á starfsemi Storytel og ríkisstyrki til hljóðbókaútgáfunnar kom m.a. fram að árið 2019 hefði Storytel á Íslandi greitt rétt rúmlega 250 milljónir króna í höfundarréttargreiðslur.

„Ástæðan fyrir því að við gerum þessa könnun er að við þurfum að vita hvaða stærðir er um að ræða til þess að við getum haft einhverja skoðun á þessu,“ sagði Karl Ágúst. Félagsmenn í RSÍ eru rúmlega 500 talsins. gudni@mbl.is